Viðskipti innlent

TM hagnast um 1,9 milljarða

Sæunn Gísladóttir skrifar
Sigurður Viðarsson, forstjóri TM, segir betri afkomu skýrast einkum af hærri
fjárfestingatekjum vegna endurmats á óskráðum hlutabréfum.
Sigurður Viðarsson, forstjóri TM, segir betri afkomu skýrast einkum af hærri fjárfestingatekjum vegna endurmats á óskráðum hlutabréfum. Vísir/Stefán
Hagnaður TM á fyrri helming ársins nam 1.875 milljónum króna, samanborið við 1.174 milljónir króna á sama tímabili árið áður.

Fram kemur í tilkynningu að hagnaður TM á öðrum ársfjórðungi var 909 milljónir króna sem er ríflega 200 milljónum króna meiri hagnaður en kom fram í afkomuviðvörun félagsins þann 18. júlí síðastliðinn.

Betri afkoma skýrist einkum af hærri fjárfestingatekjum vegna endurmats á óskráðum hlutabréfum. Afkoma af fjárfestingastarfsemi var góð á fjórðungnum og skilaði 4,9 prósent ávöxtun. Afkoma vátryggingastarfseminnar valdi hins vegar vonbrigðum og muni þar mestu um óhagstæða þróun slysamála frá fyrri árum.

Á heildina litið hafi afkoma TM á öðrum ársfjórðungi verið góð og arðsemi eigin fjár há, eða 33 prósent á ársgrundvelli. Samhliða birtingu árshlutauppgjörs birtir félagið spá fyrir næstu fjóra ársfjórðunga og endurspeglar hún þá þróun sem er að eiga sér stað í tjónum fyrri ára. Í uppfærðri spá sé gert ráð fyrir að samsett hlutfall næstu 12 mánaða verði 97 prósent.

Tjónakostnaður á öðrum ársfjórðungi reyndist mun hærri en spár gerðu ráð fyrir segir í tilkynningu. Eigin tjón á fjórðungnum vaxi þannig um 41,5 prósent borið saman við sama tíma í fyrra en eigin iðgjöld hafa á sama tíma vaxið um 6,9 prósent.

Þróun eldri slysatjóna, einkum slysatryggingar sjómanna, vegi þyngst í óhagstæðri tjónaþróun en ökutækjatryggingar hafi einnig þróast með óhagstæðum hætti milli ára.

Samsett hlutfall TM á fyrri árshelmingi er 106 prósent og framlegð af vátryggingastarfsemi neikvæð um 435 milljónir króna. Sé litið til síðustu 12 mánaða er samsett hlutfall félagsins 101,5 prósent. Rekstrarkostnaður á fyrri helmingi ársins hækkar um 1,4 prósent milli ára og kostnaðarhlutfall félagsins síðastliðna 12 mánuði er 20,3 prósent, sem nálgast langtímamarkmið TM um að ná kostnaðarhlutfalli undir 20 prósent.


Tengdar fréttir

VÍS hagnast um 1,1 milljarð

Tryggingafélagið VÍS hagnaðist um 1.107 milljónir króna á fyrri helming ársins 2017, samanborið við 238 milljónir króna á sama tímabili árið 2016.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×