Sport

Fjórar stelpur og tveir strákar í landsliðinu sem fer á EM

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mynd/Fimleikasamband Íslands
Landsliðsþjálfarnir í fimleikum hafa valið landsliðið fyrir Evrópumótið í áhaldafimleikum sem fer fram í Cluj í Rúmeníu 19. til 23. apríl næstkomandi.

Fjórar stelpur og tveir strákar eru í landsliðinu á þessu sinni en þau stóðu sig öll vel á Íslandsmótinu í áhaldafimleikum sem fram fór í Laugardalshöllinni um helgina.

Valgarð Reinhardsson úr Gerplu og Irina Sazonova úr Ármanni urðu Íslandsmeistarar í fjölþraut. Irina vann einnig Íslandsmeistaratitilinn í stökki og á jafnvægisslá en Valgarð varð Íslandsmeistari á svifrá.

Jón Sigurður Gunnarsson úr Ármanni er einnig í liðinu en hann varð Íslandsmeistari í æfingum í hringum og í þriðja sæti í fjölþraut.  Eyþór Örn Baldursson, sem varð annar í fjölþrautinni og varð Íslandsmeistari í stökki og á gólfi, er ekki í landsliðinu að þessu sinni.

Dominiqua Alma Belányi úr Ármanni, sem varð önnur í fjölþraut kvenna, er einnig í liðinu en hún varð Íslandsmeistari á tvíslá og í gólfæfingum. Hinar tvær í liðinu eru þær Agnes Suto úr Gerplu og Tinna Óðinsdóttir úr Björk. Agnes varð þriðja í fjölþraut en Tinna fjórða.

Þrjú félög eiga fulltrúa í landsliðinu að þessu sinni en Ármann á flesta eða þrjá keppendur. Gerpla á tvo og Bjarkirnar einn.



Landsliðið fyrir Evrópumótið í áhaldafimleikum:

Agnes Suto - Gerplu

Dominiqua Alma Belányi - Ármanni

Irina Sazonova - Ármanni

Tinna Óðinsdóttir - Björk

Jón Sigurður Gunnarsson - Ármanni

Valgarð Reinhardsson - Gerplu

Þjálfarar: Guðmundur Þór Brynjólfsson, Vladimir Antonov og Róbert Kristmannsson

Dómarar: Sandra Dögg Árnadóttir, Sæunn Viggósdóttir og Daði Snær Pálsson

Fararstjóri: Sólveig Jónsdóttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×