Svanhildur segir engin átök í stjórn VÍS Haraldur Guðmundsson skrifar 6. apríl 2017 14:10 Svanhildur Nanna Vigfúsdóttir var kjörin stjórnarformaður VÍS í síðasta mánuði.
Svanhildur Nanna Vigfúsdóttir, stjórnarformaður VÍS, segir að engin átök séu í stjórn tryggingafélagsins. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem hún sendi fjölmiðlum nú fyrir stundu vegna umfjöllunar Morgunblaðsins í dag. Í frétt blaðsins segir að óánægja sé meðal lífeyrissjóða í hluthafahópi VÍS um að áherslur félagsins færist frá vátryggingum til aukinnar fjárfestingarstarfsemi. Líkur standi til að krafist verði hluthafafundar og stjórnarkjörs í tryggingafélaginu. „Eins og kom fram í bréfi mínu til stærri hluthafa í félaginu, sem hefur að hluta verið birt í öðrum fjölmiðlum, þá er það „ekki markmið stjórnar að kollvarpa eða gjörbreyta því starfi sem unnið er innan fyrirtækisins. Markmið stjórnarinnar er skýrt og það er að ná betri tökum á rekstri tryggingarfélagsins VÍS og gera fyrirtækið okkar að betra félagi sem stendur betur að vígi í samkeppni,“ segir Svanhildur og vísar í bréf sem Vísir fjallaði um í síðustu viku. „Í bréfinu var einnig áréttað „að stefnumótunarvinna félagsins, ákvörðun um kaup félagsins í Kviku banka og hugmyndavinna tengd þeim kaupum var unnin af forstjóra og þeirri stjórn sem sat fram að síðasta aðalfundi," segir Svanhildur í yfirlýsingunni. Stjórnarformaðurinn segir þar einnig að flest samanburðarviðmið í rekstri tryggingarfélaganna Sjóvá, TM og VÍS séu því síðastnefnda óhagstæð og hafi verið það í nokkur ár. Hún hafi deilt áhyggjum sínum af þróun og rekstri VÍS í aðdraganda aðalfundar félagsins. „Viðmælendur deildu þessum áhyggjum enda ábyrgir fyrir eigin fjárfestingum eða arðsemi og ávöxtun sjóðfélaga sinna. Í þessum samtölum lagði ég áherslu á nauðsyn þess að ná fram breytingum á stjórn og að nýr stjórnarformaður yrði kjörinn til að ná árangri í rekstri félagsins. Ég gerði hins vegar aldrei tilkall til sætis stjórnarformanns, enda finnst mér slíkt óeðlilegt,“ segir Svanhildur. „Í aðdraganda aðalfundar VÍS hf. og þar af leiðandi fyrsta fundar nýkjörinnar stjórnar, fór af stað óeðlilegur þrýstingur ákveðinna aðila á það hvernig nýkjörin stjórn skyldi skipta með sér verkum. Ég læt ekki beita mig þrýstingi og það er ekki hlutverk mitt eða hluthafa VÍS að tryggja persónulega hagsmuni einstakra aðila á kostnað hluthafa VÍS. Ég vil taka það fram að á fundum mínum með forsvarsmönnum lífeyrissjóðanna, þá kom aldrei fram þrýstingur þess efnis að Herdís yrði formaður og öll aðkoma þeirra að málinu mjög fagleg og til fyrirmyndar. Það virðist því miður oft vera svo í umfjöllun fjölmiðla að litið sé á lífeyrissjóðina í landinu sem einn aðila, það er auðvitað ekki raunin. [...] Snúist þetta hins vegar um hver sé með völd í félaginu og fyrir hvern viðkomandi situr í stjórn, óháð þekkingu og reynslu, þá eru öll gildi um að góða stjórnarhætti fokin út í veður og vind.“Yfirlýsing Svanhildar í heild sinni:Það eru engin átök í stjórn VÍS. Það var sjálfkjörið í stjórn sem þýðir að einungis fimm aðilar gáfu kost á sér til stjórnarsetu. Þegar kom að því að stjórn skipti með sér verkum þá komu upp tvær tillögur um formann stjórnar og ég varð fyrir valinu.Eins og kom fram í bréfi mínu til stærri hluthafa í félaginu, sem hefur að hluta verið birt í öðrum fjölmiðlum, þá er það "ekki markmið stjórnar að kollvarpa eða gjörbreyta því starfi sem unnið er innan fyrirtækisins. Markmið stjórnarinnar er skýrt og það er að ná betri tökum á rekstri tryggingarfélagsins VÍS og gera fyrirtækið okkar að betra félagi sem stendur betur að vígi í samkeppni. Það er engin launung að rekstur VÍS hefur verið lakari en samkeppnisaðilanna undanfarin ár og það er eitthvað sem við eigum ekki að sætta okkur við. Þar mun áhersla nýrrar stjórnar liggja." Í bréfinu var einnig áréttað "að stefnumótunarvinna félagsins, ákvörðun um kaup félagsins í Kviku banka og hugmyndavinna tengd þeim kaupum var unnin af forstjóra og þeirri stjórn sem sat fram að síðasta aðalfundi." Í aðdraganda aðalfundar VÍS hf. hitti ég marga af stærstu hluthöfum félagsins. Ég ræddi áhyggjur mínar af þróun og rekstri félagsins. Flest samanburðarviðmið í rekstri tryggingarfélaganna eru VÍS óhagstæð og hafa verið það í nokkur ár. Viðmælendur deildu þessum áhyggjum enda ábyrgir fyrir eigin fjárfestingum eða arðsemi og ávöxtun sjóðfélaga sinna. Í þessum samtölum lagði ég áherslu á nauðsyn þess að ná fram breytingum á stjórn og að nýr stjórnarformaður yrði kjörinn til að ná árangri í rekstri félagsins. Ég gerði hins vegar aldrei tilkall til sætis stjórnarformanns, enda finnst mér slíkt óeðlilegt.Ég lagði líka mikla áherslu á að það væri góð starfshæfni í stjórninni þar sem þekking og reynsla allra stjórnarmanna myndi nýtast vel. Þegar framboðsfrestur til stjórnar rann út var ljóst að það yrði sjálfkjörið í stjórn VÍS og er erfitt að túlka það á annan hátt en að fjárfestum hafi litist vel á samsetningu stjórnarinnar og það sem ég og aðrir stjórnarmenn höfðum fram að færa. Í aðdraganda aðalfundar VÍS hf. og þar af leiðandi fyrsta fundar nýkjörinnar stjórnar, fór af stað óeðlilegur þrýstingur ákveðinna aðila á það hvernig nýkjörin stjórn skyldi skipta með sér verkum. Ég læt ekki beita mig þrýstingi og það er ekki hlutverk mitt eða hluthafa VÍS að tryggja persónulega hagsmuni einstakra aðila á kostnað hluthafa VÍS.Ég vil taka það fram að á fundum mínum með forsvarsmönnum lífeyrissjóðanna, þá kom aldrei fram þrýstingur þess efnis að Herdís yrði formaður og öll aðkoma þeirra að málinu mjög fagleg og til fyrirmyndar. Það virðist því miður oft vera svo í umfjöllun fjölmiðla að litið sé á lífeyrissjóðina í landinu sem einn aðila, það er auðvitað ekki raunin. Lífeyrissjóðirnir eru fjölmargir mismunandi sjóðir sem hver og einn hefur sjálfstæða skoðun á þeim fjárfestingum sem sjóðurinn tekur þátt í. Sjóðirnir gæta hagsmuna mismunandi sjóðsfélagahópa, en það ætti þó að vera skýrt sameiginlegt markmið þeirra og í raun allra hluthafa VÍS hf. að vilja hámarka árangur félagsins, ávöxtun og arðsemi fjárfestingarinnar.Gengisþróun VÍS síðustu tólf mánuði hefur verið 29.01% samanborið við 54,41% hjá Sjóvá og 66,29% hjá TM. Meti hluthafar VÍS hf. að núverandi stjórn sé ekki til þess fallin að ná fram aukinni hagkvæmni í rekstri og betri árangri hjá fyrirtækinu í heild að þá er það réttur þeirra að kalla saman hluthafafund. Snúist þetta hins vegar um hver sé með völd í félaginu og fyrir hvern viðkomandi situr í stjórn, óháð þekkingu og reynslu, þá eru öll gildi um að góða stjórnarhætti fokin út í veður og vind. Ég sit í stjórn VÍS hf. fyrir alla hluthafa félagsins og veit að meðstjórnendur mínir gera það líka.
Tengdar fréttir Átök í stjórn VÍS: Herdís Dröfn taldi sig hafa meirihlutastuðning Herdís Dröfn Fjeldsted, sem sagði sig úr stjórn VÍS á dögunum, segir að það hafi ávallt verið skýrt af hennar hálfu að hún sóttist eftir áframhaldandi formennsku í stjórn félagsins. 30. mars 2017 18:15 Átök í stjórn VÍS: Svanhildur segir Herdísi hafa viljað stjórnarformannssætið Svanhildur Nanna Vigfúsdóttir, fjárfestir og nýkjörinn stjórnarformaður VÍS, segir það vonbrigði að Herdís Fjeldsted, framkvæmdastjóri Framtakssjóðs Íslands, hafi sagt sig úr stjórn tryggingafélagsins á þriðjudag. 30. mars 2017 14:39 Einkafjárfestar ná undirtökunum í VÍS og hafa augastað á Kviku banka Með kjöri Svanhildar Nönnu Vigfúsdóttur, fjárfestis og eins af stærstu hluthöfum VÍS, sem formanns stjórnar tryggingafélagsins í síðasta mánuði hefur einkafjárfestum í hluthafahópnum tekist að ná völdum í stjórn fyrirtækisins. 5. apríl 2017 07:00 Mest lesið Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Viðskipti innlent Jólin gengin í garð í verslunum Bónus Neytendur Dauðbrá þegar hún beit óvænt í glerbrot Neytendur Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Viðskipti innlent Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Viðskipti innlent Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð Viðskipti innlent „Lán á bara að vera lán“ Viðskipti innlent Sveru dósirnar snúa aftur Neytendur ChatGPT virkar á ný Viðskipti erlent Fleiri fréttir Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð „Lán á bara að vera lán“ Komin með ný nöfn Jóhanna, Egill og dr. Tingting til Reykjavík Geothermal Malbiksmeistari stýrir Malbikstöðinni Svara ekki spurningum um mögulegar uppsagnir hjá NetApp Bankaskattar séu fimm sinnum hærri en í samanburðarlöndum Tómas einn vildi halda vöxtum óbreyttum Bláa lónið og Alfreð Gíslason verðlaunuð Skrifstofan á Íslandi lögð niður og óvissa um 75 störf Vísar ásökun um rógsherferð alfarið á bug Heiðar Guðjónsson um málshöfðun Gavia: „Það eru engin svik“ Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Tinna leiðir stefnumótun og viðskiptaþróun hjá Sjóvá Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Ráðinn framkvæmdastjóri BHM Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Sjá meira
Átök í stjórn VÍS: Herdís Dröfn taldi sig hafa meirihlutastuðning Herdís Dröfn Fjeldsted, sem sagði sig úr stjórn VÍS á dögunum, segir að það hafi ávallt verið skýrt af hennar hálfu að hún sóttist eftir áframhaldandi formennsku í stjórn félagsins. 30. mars 2017 18:15
Átök í stjórn VÍS: Svanhildur segir Herdísi hafa viljað stjórnarformannssætið Svanhildur Nanna Vigfúsdóttir, fjárfestir og nýkjörinn stjórnarformaður VÍS, segir það vonbrigði að Herdís Fjeldsted, framkvæmdastjóri Framtakssjóðs Íslands, hafi sagt sig úr stjórn tryggingafélagsins á þriðjudag. 30. mars 2017 14:39
Einkafjárfestar ná undirtökunum í VÍS og hafa augastað á Kviku banka Með kjöri Svanhildar Nönnu Vigfúsdóttur, fjárfestis og eins af stærstu hluthöfum VÍS, sem formanns stjórnar tryggingafélagsins í síðasta mánuði hefur einkafjárfestum í hluthafahópnum tekist að ná völdum í stjórn fyrirtækisins. 5. apríl 2017 07:00
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent