Peningakerfið er risavaxin svikamylla sem er að drepa allt líf á jörðinni Sölvi Jónsson skrifar 30. mars 2017 00:00 Flestir halda að bankakerfið starfi svona: Almenningur og fyrirtæki leggja peninga inn í bankana gegn vöxtum. Bankarnir lána síðan þessa sömu peninga gegn hærri vöxtum. Vaxtamismunurinn er hagnaður bankans. Ef þetta væri rétt þá ætti viðskiptavinur að hafa upplifað að bankainnistæða hans hafi verið lækkuð svo bankinn gæti lánað út pening. Hvernig ætti bókhaldið að ganga upp ef allir halda sínum fullu innistæðum á sama tíma og bankinn lánar þær? Bankar lána ALDREI sparifé almennings, heldur búa þeir til nýja peninga í hvert skipti sem þeir veita lán. Þegar banki fær lán endurgreitt þá hverfur það úr bókhaldinu og vextirnir sitja einir eftir. Ekki einu sinni okurlánari hefur þetta vald og þess vegna eru bankar ekkert annað en löglegar glæpastofnanir. Fólk þarf að borga húsnæðið sitt þrefalt, fjórfalt til baka á 25-40 árum með svita sinnar vinnu. Á bak við þessa upphæð var upphaflega ekkert annað en tala stimpluð inn í tölvu og undirskrift lántakandans. Seðlabankar hafa einir vald til að prenta peninga. Þeir vilja fá þessa peninga til baka með vöxtum þegar þeir lána þá bönkum, stundum stjórnvöldum. Allir peningar verða með öðrum orðum til sem skuld. Ef öllum ríkjum heimsins tækist nú dag einn að borga skuldir sínar þá þar með hyrfu peningar. Nema vondu fréttirnar eru þær að skuldir heimsins eru mun meiri en peningamagn í umferð þannig að það er ógerlegt. Bandaríkin skulda bráðum 20.000.000.000.000 dollara og ekki er maður nú að sjá að það muni nokkurn tímann grynnka á þessum skuldum. Skuldir Kína miðað við þjóðarframleiðslu nálgast skuldir Bandaríkjanna (250% vs. 330%). Heilu draugaborgirnar rísa þar bara til að sýna fram á hagvöxt (hagvöxtur knúinn áfram með lántökum). Einu þjóðirnar sem geta hugsanlega unnið sig út úr skuldum eru framleiðsluþjóðir eins og Ísland. Það segir sig sjálft að þetta kerfi er ósjálfbært. Það er ætlast til þess að meira komi til baka heldur en er sett inn í það, þ.e. bankar og seðlabankar búa til peninga, lána þessa peninga og fara fram á meiri peninga til baka (lánið plús vextir).Allur auður til bankanna Peningakerfið virkar með öðrum orðum þannig að auður jarðar sogast með tímanum allur til bankanna. Almenningur missir húsnæðið sitt, stoðunum er kippt undan velferðarkerfum, peningur fólks brennur upp á verðbólgubáli. Peningakerfið kallar á eilífan hagvöxt. Hagvöxtur er oft knúinn fram þannig að gengið er á gæði landsins. Brasilía er sem dæmi stórskuldugt land og sér ekki annan kost til að standa í skilum en höggva regnskóga sína. Landið geymir lungu jarðar og ætti að teljast til forréttindalanda sem ætti að fá algjöra skuldaaflausn. Með sama áframhaldi á eyðingu regnskóga þá verða þeir allir horfnir eftir 40 ár með tilheyrandi útdauða dýrategunda. Peningakerfið er risavaxin svikamylla sem er að drepa allt líf á jörðinni. Fólk sem er duglegt að veifa kreditkortum ætti að hafa í huga að með því er það að gera efnislega peninga óþarfa. Á öllum Norðurlöndunum er stefnt á að hagkerfi framtíðarinnar verði myntlaust. Þegar þetta verður að veruleika þá er fólk komið algjörlega á vald bankanna. Bankar geta til dæmis gert peninga fólks upptæka til að bjarga sér frá gjaldþroti og/eða komið á neikvæðum vöxtum. Bankarnir fá þá greitt fyrir að geyma peninga almennings. Ekki getum við í myntlausu hagkerfi geymt peningana okkar undir koddanum þar sem þeir ættu með réttu að vera. Það hefur oft verið talað um það að ef allur almenningur vaknaði til vitundar um það hvernig peningakerfið raunverulega virkaði þá yrði gerð bylting. Mikið væri nú gott að fá þessa byltingu.Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Heilbrigðiskerfi Íslands - Tími fyrir lausnir! Victor Gudmundsson Skoðun Banvænt aðgerðarleysi Tómas A. Tómasson Skoðun Hvers vegna þurfti að farga bókinni? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Hjarta umhverfismála Margrét Júlía Rafnsdóttir Skoðun Ísland hástökkvari í málefnum hinsegin fólks Guðmundur Ingi Guðbrandsson Skoðun Forseti sem svarar á mannamáli Erna Ástþórsdóttir Skoðun „Ég kýs homma“ Óli Gunnar Gunnarsson Skoðun Hugsjónir og fræðimennska – einstakt veganesti Baldurs í embætti forseta Íslands Rannveig Traustadóttir Skoðun Kletturinn Katrín Júlía Margrét Alexandersdóttir Skoðun Náttúruminjasafn Íslands má sinna sýningahaldi! Hilmar J. Malmquist Skoðun Skoðun Skoðun Menntamorð Ingólfur Gíslason skrifar Skoðun Náttúruminjasafn Íslands má sinna sýningahaldi! Hilmar J. Malmquist skrifar Skoðun Hvers vegna þurfti að farga bókinni? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Hjarta umhverfismála Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Hugsjónir og fræðimennska – einstakt veganesti Baldurs í embætti forseta Íslands Rannveig Traustadóttir skrifar Skoðun Ísland hástökkvari í málefnum hinsegin fólks Guðmundur Ingi Guðbrandsson skrifar Skoðun Banvænt aðgerðarleysi Tómas A. Tómasson skrifar Skoðun Viltu koma í ferðalag? Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun „Ég kýs homma“ Óli Gunnar Gunnarsson skrifar Skoðun Forseti sem svarar á mannamáli Erna Ástþórsdóttir skrifar Skoðun Hugrekki Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Afvegaleiðing SFS? Friðleifur Egill Guðmundsson skrifar Skoðun Jón Gnarr fyrir dýraverndina Árni Stefán Árnason skrifar Skoðun Mannréttindastofnun verður að veruleika Jódís Skúladóttir skrifar Skoðun Samstarf við landsbyggðina Sævar Þór Halldórsson skrifar Skoðun Lausnin út í mýri? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Sigþórsdóttir skrifar Skoðun Takk Ísland fyrir upplýsandi kosningabaráttu! Tómas Ellert Tómasson skrifar Skoðun Forseti sem gefur kjark og von Mamiko Dís Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Við unga fólkið viljum fá sæti við borðið Selma Rós Axelsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigðiskerfi Íslands - Tími fyrir lausnir! Victor Gudmundsson skrifar Skoðun Offita er langvinnur sjúkdómur Hópur fólks í stjórn Félags fagfólks um offitu skrifar Skoðun Reykjavíkurborg svíkur íbúa Laugardals Grétar Már Axelsson skrifar Skoðun Mynda þurfti ríkisstjórn Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kletturinn Katrín Júlía Margrét Alexandersdóttir skrifar Skoðun Nýsköpun er svarið Nótt Thorberg skrifar Skoðun Aleinn í heiminum? Lukka Sigurðardóttir,Katrín Harðardóttir ,Margrét Kristín Blöndal skrifar Skoðun Ísland í öðru sæti Regnbogakortsins um réttindi hinsegin fólks Bjarndís Helga Tómasdóttir,Daníel E. Arnarsson skrifar Skoðun Almenn kvíðaröskun: léttvægt vandamál eða áhyggjuefni? Sævar Már Gústavsson skrifar Skoðun Lokað á börn í vanda Sigmar Guðmundsson skrifar Skoðun Sérstök vitleysa Albert Björn Lúðvígsson skrifar Sjá meira
Hugsjónir og fræðimennska – einstakt veganesti Baldurs í embætti forseta Íslands Rannveig Traustadóttir Skoðun
Skoðun Hugsjónir og fræðimennska – einstakt veganesti Baldurs í embætti forseta Íslands Rannveig Traustadóttir skrifar
Skoðun Ísland í öðru sæti Regnbogakortsins um réttindi hinsegin fólks Bjarndís Helga Tómasdóttir,Daníel E. Arnarsson skrifar
Hugsjónir og fræðimennska – einstakt veganesti Baldurs í embætti forseta Íslands Rannveig Traustadóttir Skoðun