Íslendingar beina viðskiptum sínum til netsins og frá landinu Snærós Sindradóttir skrifar 2. mars 2017 07:00 Íslendingar versla gríðarlega mikið frá ASOS eins og sést glögglega í tollafgreiðslu Póstsins. ASOS er bresk netverslun með þúsundir vörunúmera fyrir karla og konur. vísir/vilhelm
Velta íslenskrar fataverslunar dróst saman um tólf prósent í janúar á milli ára, sem er sama mynstur og verið hefur undanfarin misseri. Fataverslun virðist vera eini angi verslunar á Íslandi sem ekki hefur náð vopnum sínum eftir hrun, þrátt fyrir kaupmáttaraukningu almennings, styrkingu krónunnar og niðurfellingu tolla á fatnaði og skóm.Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri SVÞ.vísir/stefánÁ sama tíma hefur sprenging orðið í afgreiddum sendingum hjá Íslandspósti. Erlendar sendingar til almennings jukust um 42 prósent á síðasta ári, í takt við niðurfellingu vörugjalda. Tekið skal fram að tölurnar eru ekki sundurliðaðar á vöruflokka en ljóst er að fatnaður er mjög fyrirferðarmikill í netverslun Íslendinga. Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu, segir að þar á bæ klóri menn sér í hausnum yfir þessu þar sem allar forsendur séu uppi til að hagstætt sé að versla hér á landi. „Það bendir allt til þess að netverslun hafi farið á algjört flug seinni hluta síðasta árs. Það mun koma enn betur fram á næstunni.“Almenningur virðist sjá hag sinn í því að kaupa fatnað á netinu. „Baráttan fyrir því að ná tollunum af var klárlega til að jafna samkeppnisstöðu fataverslunar á Íslandi við fataverslun í samanburðarlöndunum. Ef þú kaupir á netinu þá ertu að borga tvöfaldan virðisaukaskatt, bæði í landinu sem keypt er í og við komuna hingað til landsins. Samt sér fólk sér hag í því,“ segir Andrés. Hann segist ekki vilja svara því hvort það þýði að álagning íslenskrar fataverslunar sé einfaldlega of mikil. Verslunarrekendur verði sjálfir að svara því. „Þetta eru samt allt hlutir sem koma inn í myndina,“ segir Andrés.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Viðskipti innlent Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Sviptingar í stjórn Amaroq Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Viðskipti innlent Fleiri fréttir Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sjá meira