Einkafjárfestar hverfandi í Icelandair Hörður Ægisson skrifar 16. febrúar 2017 07:00 Gengi Icelandair Group hækkaði um 1,27 prósent í 226 milljóna króna viðskiptum í Kauphöllinni í gær. Bréfin hafa lækkað um 28 prósent frá afkomuviðvörun félagsins sem gefin var út í lok janúarmánaðar. vísir/pjetur
Afar lítið er um einkafjárfesta í hluthafahópi Icelandair Group sem eiga um þessar mundir talsverða eignarhluti í félaginu. Samkvæmt lista yfir alla hluthafa flugfélagsins síðastliðinn mánudag, sem Fréttablaðið hefur séð, eru tíu stærstu einkafjárfestar á hluthafalista félagsins samanlagt aðeins með um 1,9 prósent í Icelandair. Markaðsvirði Icelandair hefur minnkað um 115 milljarða frá því í lok apríl 2016 samhliða því að hlutabréfaverð félagsins hefur lækkað um 60 prósent. Í þessum hópi einkafjárfesta er eignarhaldsfélagið Brimgarðar, sem er í eigu Guðnýjar, Eggerts, Halldórs og Gunnars Gíslabarna, umsvifamest með tæplega 0,7 prósenta eignarhlut. Í árslok 2015 átti félagið hins vegar 0,35 prósenta hlut í Icelandair og hefur því tvöfaldað stöðu sína í félaginu á rúmlega einu ári. Miðað við gengi bréfa Icelandair við lokun markaða í gær er hlutur Brimgarða metinn á um 545 milljónir króna. Enga einkafjárfesta er að finna á opinberum lista yfir tuttugu stærstu hluthafa flugfélagsins en íslenskir lífeyrissjóðir eiga samanlagt vel yfir helmingshlut. Þá á Högni Pétur Sigurðsson, fjárfestir og einn eigenda Domino’s á Íslandi, um 0,35 prósenta hlut í Icelandair, bæði í eigin nafni og eins í gegnum eignarhaldsfélagið Nautica. Hjónin Bogi Þór Siguroddsson og Linda Björk Ólafsdóttir, sem eiga meðal annars Johan Rönning, eru með 0,2 prósenta hlut í gegnum félagið Sindrandi ehf. en sá hlutur er í dag metinn á um 159 milljónir. Í árslok 2015, samkvæmt hluthafalista Icelandair Group á þeim tíma, átti sama félag þeirra hjóna hins vegar 0,57 prósenta hlut. Rétt er að taka fram að hluthafalisti Icelandair gefur ekki tæmandi mynd af því hvaða einkafjárfestar eru í reynd í eigendahópi félagsins hverju sinni. Margir þeirra kunna meðal annars að eiga talsverða hlutafjáreign í flugfélaginu í gegnum safnreikninga sem eru skráðir í nafni fjármálafyrirtækja eða framvirka samninga sem þeir hafa gert um hlutabréfaviðskipti í Icelandair.Erlendir sjóðir með tvö prósentFrá því var greint í Markaðnum, fylgiriti Fréttablaðsins um viðskipti og efnahagsmál, í gær að fjórir bandarískir fjárfestingasjóðir ættu um þessar mundir rúmlega tveggja prósenta eignarhlut í Icelandair Group. Enginn einn fjárfestingasjóðanna kemst þó á opinberan lista yfir tuttugu stærstu hluthafa flugfélagsins. Markaðsvirði þeirra bréfa sem eru í eigu sjóðanna er í dag samtals um 1.600 milljónir. Fjárfestingasjóðirnir byrjuðu að kaupa bréf í Icelandair á árinu 2015 og frá því í ársbyrjun 2016 hafa sjóðirnir nærri þrefaldað eignarhlut sinn í félaginu.Talsverð viðskipti hafa verið með bréf Icelandair Group á undanförnum dögum og síðastliðinn mánudag kom fjárfestir að kaupum á 50 milljónum hluta í félaginu á genginu 16, eða sem jafngildir eins prósents eignarhlut í Icelandair. Það voru markaðsviðskipti Kviku banka sem voru milligönguaðilar með þeim viðskiptum. Fram kom í Morgunblaðinu að samkvæmt heimildum blaðsins væru viðskiptin tengd stjórnarkjöri á aðalfundi Icelandair Group sem fer fram 3. mars næstkomandi. Frestur til að skila inn framboði til stjórnar er þar til fimm dögum fyrir aðalfund.Horft til breytinga á stjórnMargir fjárfestar í Icelandair, ásamt öðrum markaðsaðilum, horfa til þess að breytingar verði gerðar á stjórn félagsins á aðalfundinum. Hafa ýmsir gagnrýnt yfirstjórnendur Icelandair, bæði stjórnarmenn og aðra helstu stjórnendur félagsins, fyrir að hafa ekki komið fyrr fram með trúverðuga aðgerðaáætlun til að bregðast við vaxandi erfiðleikum í rekstrarumhverfi Icelandair. Afar líklegt er því talið að ýmsir hluthafar muni vilja sjá ný andlit í stjórn flugfélagsins. Fjórir stærstu eigendur Icelandair Group – Lífeyrissjóður verslunarmanna, Stefnir, Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins (LSR) og Gildi lífeyrissjóður – eiga samanlagt 46 prósent í félaginu. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins stendur ekki annað til hjá Lífeyrissjóði verslunarmanna en að styðja áfram Úlfar Steindórsson, varaformann stjórnar, til stjórnarsetu og slíkt hið sama áformar LSR hvað varðar stuðning sinn við Magnús Magnússon. Meiri óvissa er um áform Stefnis, sem á 14,3 prósent í gegnum tvo hlutabréfasjóði í stýringu félagsins, en fram til þessa hefur sjóðastýringarfyrirtækið ekki stutt neinn tiltekinn einstakling til setu í stjórninni. Það gæti tekið breytingum á komandi aðalfundi.Íhugar framboðSvanhildur Nanna, sem er á meðal stærstu hluthafa, ásamt eiginmanni sínum, Guðmundi Erni Þórðarsyni, í VÍS og Kviku, bauð sig fram í stjórn Icelandair á aðalfundi flugfélagsins í mars í fyrra en hlaut ekki brautargengi. Í frétt Markaðarins 8. febrúar sagði Svanhildur aðspurð að það kæmi vissulega til greina að bjóða sig fram á ný sæi hún fram á að hluthafar væru tilbúnir í breytingar á stjórn félagsins. Svanhildur sagðist löngum hafa verið þeirrar skoðunar að það væri mikilvægt að jafnvægi ríkti milli svonefndra óháðra stjórnarmanna og stjórnarmanna sem hafa beina hagsmuni af árangri félaganna. „Það skortir nokkuð á það jafnvægi í stjórn Icelandair eins og sakir standa.“ Þau hjónin hafa minnkað lítillega hlut sinn í Icelandair að undanförnu en Svanhildur staðfesti að þau ættu engu að síður um 15 milljónir hluta, sem jafngildir um 0,3 prósenta hlut. Sá hlutur er hins vegar ekki á þeirra eigin nafni eða fjárfestingafélags þeirra, samkvæmt hluthafalista Icelandair 13. febrúar síðastliðinn.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Mest lesið Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Viðskipti innlent Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Fleiri fréttir Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Sjá meira