Bjarni Ármanns keypti sig inn í skórisann S4S Haraldur Guðmundsson skrifar 1. febrúar 2017 08:00 Bjarni Ármansson fjárfestir á nú fjórðungshlut í S4S sem á Skechers í Kringlunni. Vísir/Ernir
Fjárfestingarfélagið Sjávarsýn í eigu Bjarna Ármannssonar, fjárfestis og fyrrverandi forstjóra Glitnis, keypti í október 26 prósenta hlut í heildversluninni S4S ehf. sem rekur skóverslanir á höfuðborgarsvæðinu. Eignarhluturinn var áður í eigu Ingunnar Gyðu Wernersdóttur fjárfestis en S4S á Steinar Waage, Ecco, Kaupfélagið, Skór.is, Toppskóinn og íþróttavöruverslunina Air.is í Smáralind. Bjarni settist í stjórn heildverslunarinnar í byrjun nóvember og tók þá sæti Bjarna Hafþórs Helgasonar, fyrrverandi fjárfestingarstjóra KEA og eiginmanns Ingunnar. Helga Sverrisdóttir, eiginkona Bjarna, fór á sama tíma inn í varastjórn félagsins í stað Ingunnar.Pétur Þór Halldórsson, stærsti eigandi S4S, á 50 prósenta hlut í félaginu samkvæmt nýjasta ársreikningi þess. Aðrir hluthafar eru Hermann Helgason, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, og Georg Kristjánsson en þeir eiga sín tólf prósentin hvor. S4S var rekið með 111 milljóna króna hagnaði árið 2015 en eignir þess námu þá 735 milljónum króna. Eigið fé félagsins var jákvætt um 342 milljónir og eiginfjárhlutfallið var 47 prósent. Sjávarsýn á meðal annars útivistarvöruverslunina Ellingsen, fyrirtækið Ísmar í Síðumúla og 11,5 prósenta hlut í olíuþjónustufyrirtækinu Fáfni Offshore. Í byrjun desember í fyrra samþykktu Seðlabanki Íslands og samkeppnisyfirvöld á Spáni kaup Solo Seafood, í eigu Sjávarsýnar og þriggja íslenskra útgerðarfyrirtækja, á Icelandic Iberica, fyrrverandi dótturfélagi Icelandic Group á Spáni. Sjávarsýn átti í árslok 2015 eignir upp á 3,3 milljarða króna miðað við nýjasta ársreikning fjárfestingarfélagsins. Ekki náðist í Bjarna Ármannsson við vinnslu fréttarinnar.
Mest lesið Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Viðskipti innlent Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Viðskipti innlent Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Viðskipti innlent Fleiri færðu lögheimili í ár Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf Fleiri fréttir Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Sjá meira