Viðskipti innlent

95% fasteignalán: Höfum áður brennt okkur á þessari umræðu

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Mikill þrýstingur er á fasteignmarkaði sem stendur.
Mikill þrýstingur er á fasteignmarkaði sem stendur. Vísir/Anton Brink
Þorsteinn Víglundsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, segir að skýr merki séu á fasteignamarkaði um ofhitnun og bólumyndun. Rétt sé að hafa áhyggjur af ástandinu enda sé hækkun á fasteignaverði langt umfram kaupmáttaraukningu. Lausnin sé að auka framboð á lóðum og smærri íbúðum, en ekki hærra lánshlutfall. Það hafi áður leitt okkur í ógöngur.

Þorsteinn var spurður álits í Morgunútvarpi Rásar 2 í morgun á 95% fasteignalánum sem byggingarfélagið Þak hefur í hyggju að veita. Um er að ræða lán sem brúar bilið frá bankalánum, á bilinu 10-15% af kaupverði, og ber 9,8% vexti í 7 ár. Í frétt Vísis í gær kom fram að fleiri byggingarfélög hefðu áhuga á að feta í sömu fótspor.

„Mér leist ekkert séstaklega vel á þessa leið og þegar ég kynnti mér hana betur þá leist mér enn verr á hana, þegar að ég sá að lánið er á mjög háum vöxtum til mjög skamms tíma. Þannig að þetta þýðir að þetta er mikil greiðslubyrði fyrir fólk,“ segir Þorsteinn. 

Sjá einnig: Bjóða 95% fasteignalán: „Vonandi fyrsta skrefið í átt að því sem koma skal“



Þorsteinn VíglundssonVísir
Áður brennt okkur

Hann segir að rétt sé að varast umræðuna um aukið veðhluftall, Íslendingar hafi brennt sig á henni áður.

90% fasteignalán voru til að mynda eitt aðalkosningamál Framsóknarflokksins árið 2003, lán sem voru harðlega gagnrýnd í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Þau hafi blásið upp fasteignaverð og aukið þrýstinginn á markaðinn á þenslutíma.

„Við þekkjum hvað gerðist hér síðast,“ segir Þorsteinn. „Þetta var fyrst og fremst til að sprengja frekar upp fasteignaverðið og setti fólk oft í mjög skuldsetta stöðu. Það mátti lítið við að fasteignaverð lækkaði að nýju og við fórum í gegnum mjög sársaukafulla og kostnaðarsama aðlögun hvað þetta varðar eftir hrun. Þann leik viljum við ekki endurtaka,“ segir Þorsteinn.

„Meintum vanda ungs fólks var mætt með hærri veðsetningu sem á endanum skapaði miklu meira vandamál en það leysti.“

Hann segir lausnina því ekki fólgna í auknu svigrúmi til lántöku, vinna þurfi betur á framboðshliðinni ef tryggja á jafnvægi á fasteignamarkaði til langtíma. Þannig verði að tryggja aukið lóðaframboð og byggja smærra, það muni til að mynda auðvelda ungu fólki að taka fyrsta, erfiða, skrefið inn á húsnæðismarkaðinn. Til þess þarf að efla samtal ríkis við sveitarfélögin, jafnt sem samtalið á milli þeirra.

Þrýstingurinn sé mikill á markaðnum núna og segir Þorsteinn að í ráðuneyti hans sé talað um skýr merki ofhitnunar og bólumyndunar – þau beri að varast. Fasteignaverð sé að hækka langt umfram kaupmáttaraukningu. Því sé að öllum líkindum ekki rétti tíminn til að kaupa fasteign.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×