Rétt slapp við skotárás mexíkósku mafíunnar Benedikt Bóas skrifar 25. janúar 2017 06:00 Benedikt á ströndinni í Mexíkó sama dag og skotárásin átti sér stað. Mynd/Benedikt Stefánsson „
Þetta var lokadagurinn á hátíðinni og ég var á leiðinni niður á klúbbinn. Það var eiginlega algjör lukka að ég var ekki á staðnum,“ segir plötusnúðurinn Benedikt Sölvi Stefánsson, sem var að þeyta skífum á BPM-hátíðinni í Mexíkó, þegar byssumaður skaut fjóra til bana og særði 15 í klúbbnum Blue Parrot í bænum Playa Del Carmen. Kveikt hefur verið á fjölmörgum kertum til að minnast þeirra sem létust.vísir/epaÍ yfirlýsingu frá bæjaryfirvöldum kom fram að fimmta fórnarlambið hefði látist í troðningnum sem varð í kjölfarið. Saksóknarinn í héraðinu Quintana Roo, þar sem Playa Del Carmen er, hefur gefið út að skilaboð frá Zetas-eiturlyfjahringnum hafi fundist á vettvangi. Þrír eiturlyfjahringir berjast um yfirráð í héraðinu, Zetas, Golfo og Los Pelones, en morðtíðni er mjög lág þar miðað við önnur héruð í landinu. Vegna ferðamanna er héraðið talið mikilvægt fyrir eiturlyfjahringina. Árásin er sögð gríðarlegt áfall fyrir ferðaþjónustu í Mexíkó. Bæjarstjórinn í Playa Del Carmen, Cristina Torres Gómez, sagði að hátíðin yrði aldrei haldin aftur. Eftir árásina tók Benedikt, sem kallar sig Bensöl, leigubíl yfir í næsta bæ þaðan sem flogið var til Cancun en skömmu síðar var þeim flugvelli lokað sem og nokkrum öðrum í héraðinu. „Þó ég hafi ekki orðið vitni að árásinni þá var erfitt að komast út á flugvöll. Ég var mjög stressaður og ég hef alveg vaknað í svitabaði á næturnar. Þetta tók á og ég var feginn að komast heim,“ segir hann.Skömmu eftir árásina.vísir/epaBPM-hátíðin fagnaði 10 ára afmæli í ár en rúmlega 70 þúsund manns frá 72 löndum komu til að hlusta og njóta. Benedikt segir að hún sé ákveðinn núllpunktur hjá þeim sem eru að spila og tengjast klúbbamenningu. Hátíðin tekur 10 daga og spiluðu rúmlega 400 plötusnúðar frá morgni til kvölds. „Hátíðin hefur oft verið kosin besta hátíðin og er mjög virt út um allan heim,“ segir hann. „Þessi hátíð er búin að vera friðsæl og falleg í tíu ár og er nánast búin að byggja upp bæinn Playa Del Carmen. En þetta er Mexíkó og það er lítill munur á mafíu og stjórnvöldum. Ég var bæði að spila og líka að skoða listamenn fyrir Secret Solstice-hátíðina. Ég þurfti því að vera á mörgum stöðum og ég átti að vera á Blue Parrot. Eftir árásina var hverfum lokað og það var ráðist meðal annars á lögreglumenn. Ég öskraði bara á leigubílstjórann að drífa sig og hann keyrði helvíti greitt út á völl. Það kom mér heim.“ Í kjölfar handtöku eiturlyfjabarónsins Joaquíns „El Chapo“ Guzmán, sem var foringi Sinaloa-eiturlyfjahringsins, hafa aðrir eiturlyfjahringir verið að sýna mátt sinn og megin. Margir erlendir fréttamiðlar fullyrða að mafíustríð geisi í landinu. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Tengdar fréttir El Chapo lýsir yfir sakleysi sínu Joaquin Guzman er sakaður um peningaþvætti, fíkniefnasmygl, mannrán og morð víða í Bandaríkjunum eins og í New York, Chicago og í Miami. 20. janúar 2017 20:42 El Chapo framseldur til Bandaríkjanna Sex mismunandi embætti í Bandaríkjunum vilja rétta fyrir honum fyrir fíkniefnasmygl og aðra glæpi. 19. janúar 2017 23:42 Penn var gáttaður á því að El Chapo vildi hitta sig Sjáðu viðtalið sem 60 minutes tók við Sean Penn um fund hans með El Chapo í Mexíkó. 28. janúar 2016 15:36 Mest lesið Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Þrír handteknir fyrir rán Innlent Fleiri fréttir Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Sjá meira
El Chapo lýsir yfir sakleysi sínu Joaquin Guzman er sakaður um peningaþvætti, fíkniefnasmygl, mannrán og morð víða í Bandaríkjunum eins og í New York, Chicago og í Miami. 20. janúar 2017 20:42
El Chapo framseldur til Bandaríkjanna Sex mismunandi embætti í Bandaríkjunum vilja rétta fyrir honum fyrir fíkniefnasmygl og aðra glæpi. 19. janúar 2017 23:42
Penn var gáttaður á því að El Chapo vildi hitta sig Sjáðu viðtalið sem 60 minutes tók við Sean Penn um fund hans með El Chapo í Mexíkó. 28. janúar 2016 15:36