Glamour

Ósýnileg auglýsing Moncler sú metnaðarfyllsta til þessa

Ritstjórn skrifar
Í fyrstu gæti maður haldið að þessi auglýsing sé photoshoppuð en við nánari athugun er ekki svo.
Í fyrstu gæti maður haldið að þessi auglýsing sé photoshoppuð en við nánari athugun er ekki svo. Myndir/Moncler
Nýjasta auglýsing Moncler er vægast sagt mögnuð þegar betur er að gáð. Við fyrstu sýn er eins og maðurinn í auglýsingunni sé photoshoppaður til þess að líta út fyrir að vera ósýnilegur. Þegar betur er að gáð þá má sjá að maðurinn er í raun handmálaður til þess að líta út fyrir að falla inn í umhverfið. 

Hugmyndin og þessi ótrúlega nákvæmisvinna var gerð af japanska listamanninum Liu Bolen. Hann hefur oft verið kallaður "the invisable" man en hann er maðurinn á bakvið verkið "hiding in the city". Myndirnar eru svo skotnar af Annie Leibovitz. 

 

Ótrúleg nákvæmisvinna.





×