Ægir Þór aftur með sigurkörfu á síðustu sekúndunni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. janúar 2017 22:46 Ægir Þór Steinarsson. Vísir/Ernir
Íslenski landsliðsbakvörðurinn Ægir Þór Steinarsson tryggði sínu liði San Pablo Inmobiliaria Burgos sigur í kvöld í spænsku b-deildinni í körfubolta. Ægir skoraði þá sigurkörfuna í 80-78 sigri á Actel Força Lleida. Ægir sparaði stigin sín þar til að þau skiptu öllu máli en þetta var eina karfan hans í öllum leiknum. Þetta er í annað skiptið á þessu tímabili þar sem Ægir skorar sigurkörfuna rétt fyrir leikslok. Ægir skoraði líka sigurkörfuna á móti CB Peixefresco í nóvember. Hann hefur því verið góður á örlagastundu fyrir sitt lið í vetur. Ægir Þór Steinarsson var með 2 stig, 7 fráköst og 5 stoðsendingar á þeim tæpu 18 mínútum sem hann spilaði í kvöld. Hann var búinn að klikka á öllum fjórum skotum sínum utan af velli fyrir lokaskotið mikilvæga. Burgos-liðið hefur þar með unnið átta deildarleiki í röð eða alla leiki sína frá og með 25. nóvember síðastliðinn. Liðið er á toppnum en með jafnmörg stig og San Sebastián Gipuzkoa.
EM 2017 í Finnlandi Körfubolti Mest lesið Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Enski boltinn „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Enski boltinn Myndasyrpa frá Reykjavíkurmaraþoninu: Bleyta, bætingar og bros Sport Infantino beðinn um að mæta ekki á barnamót sem FIFA fjármagnar Fótbolti Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Enski boltinn Hleypur aldrei aftur eftir hjartastopp Sport Fleiri fréttir Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Keyrðu yfir Svartfellinga undir lokin og undanúrslitin bíða Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Sturla Böðvarsson til KR Sjáðu tilþrif Berglindar úr úrslitaleiknum: Skoraði 46 meira en næsti leikmaður á EM Lakers selt fyrir metupphæð Berglind fékk Gullboltann Stórbrotin endurkoma næstum því nóg í úrslitaleiknum Komust í 8-liða úrslit þrátt fyrir tap Sjá meira