Þar rifjaði Grohl upp ótrúlegt atvik sem átti sér stað á tónleikum Foo Fighters í Gautaborg.
Grohl féll fram af sviðinu með þeim afleiðingum að hann fótbrotnaði. Þetta gerðist á meðan hljómsveitin spilaði lagið Monkey Wrench en það var einungis annað lag tónleikanna í júní árið 2015.
Grohl fór af sviðinu í nokkrar mínútur og snéri síðan til baka og spilaði fótbrotinn í tvær og hálfa klukkustund. Í þann tíma þurfti sænskur læknir að halda fótlegg Grohl grafkyrrum. Söngvarinn fékk loksins að hitta lækninn sem bjargaði fótlegg Grohl í Skavlan á dögunum.