Boston vann stórveldaslaginn | Myndbönd Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 4. mars 2017 10:51 Isiah Thomas var stigahæstur í jöfnu liði Boston. vísir/getty
Sjö leikir fóru fram í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Boston Celtics bar sigurorð af Los Angeles Lakers, 95-115, þegar gömlu stórveldin mættust í Staples Center. Sex leikmenn Boston skoruðu 13 stig eða meira í leiknum í nótt. Isiah Thomas var þeirra stigahæstur með 18 stig en hann gaf einnig átta stoðsendingar. Jordan Clarkson skoraði 20 stig fyrir Lakers sem hefur tapað sex leikjum í röð og vermir botnsætið í Vesturdeildinni. Það var mikið skorað þegar Cleveland Cavaliers sótti Atlanta Hawks heim. Lokatölur 130-135, Cleveland í vil. Kyrie Irving skoraði 43 stig og gaf níu stoðsendingar og LeBron James gerði 38 stig, tók 13 fráköst og gaf átta stoðsendingar fyrir Cleveland sem er á toppnum í Austurdeildinni. Tim Hardaway yngri var stigahæstur í liði Atlanta með 36 stig en hann hitti úr 13 af 20 skotum sínum í leiknum. Stórleikur Russells Westbrook dugði Oklahoma City Thunder ekki til sigurs gegn Phoenix Suns á útivelli. Lokatölur 118-111, Phoenix í vil. Westbrook skoraði 48 stig, tók 17 fráköst og gaf níu stoðsendingar. Þetta var 25. leikurinn í vetur þar sem hann er með a.m.k. 30 stig, 10 fráköst og fimm stoðsendingar.Úrslitin í nótt: LA Lakers 95-115 Boston Atlanta 130-135 Cleveland Phoenix 118-111 Oklahoma Philadelphia 105-102 NY Knicks Washington 106-114 Toronto Milwaukee 112-101 LA Clippers New Orleans 98-101 San Antonio
NBA Mest lesið PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Fleiri fréttir Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Sjá meira