Góðir tímar í Noregi Starri Freyr Jónsson skrifar 30. maí 2017 16:00 Gylfi Hauksson starfaði í Noregi um eins árs skeið fyrir verktakafyrirtækið Ístak.
Gylfi Hauksson dvaldi um eins árs skeið í Noregi þar sem hann kom að fjölbreyttum verkefnum. Ævintýraþráin dró hann þangað en hann starfaði fyrir verktakafyrirtækið Ístak í Ytre Sortvik og Stavanger. „Svo hjálpaði líka til að launin voru nánast tvöföld miðað við það sem var í boði hér á landi fyrir vélamann. Þetta leit bara vel út og maður sá fram á að fá loksins mannsæmandi laun fyrir vinnu. Einnig var spennandi tilhugsun að vinna í öðru landi og kynnast nýjum hlutum. Ekki skemmdu heldur fyrir allar ferðirnar í fríhöfninni.“Vinnubúðir í Tau þar sem Gylfi bjó.Hann hóf fyrst störf í Ytre Sortvik sem almennur vélamaður og verkamaður en fjörðurinn er í Norður-Noregi, um 90 km sunnan við nyrsta odda Evrópu. „Þar reistum við vegskála vegna hættu á grjóthruni og snjóflóðum. Við sprengdum heilmikið úr berginu, lögðum nýjan veg og reistum skála yfir hluta hans. Einnig grófum við fyrir rafmagnslögnum og dreni og steyptum lagnastokka fyrir ídráttarrör.“ Notaður var m.a. öflugur bílkrani til hífingar við steypuvinnuna. „Verkið var unnið þannig að steypt var að neðanverðu tilbúinn stór bogadreginn fleki sem var rennt eftir sérstakri braut en síðan var raðað mótum ofan á. Einnig vorum við með um 25 tonna beltagröfu sem sá um almenna gröfuvinnu og vegagerð ásamt 16 tonna hjólagröfu.“ Norskir verktakar mættu næst með brjótasamstæðu til að brjóta efni í framkvæmdirnar. Einnig voru norskir verktakar sem sáu um að fræsa upp malbik á gamla veginum á svæðinu. „Við bjuggum á hóteli skammt frá verkstað sem var reyndar ansi frumstætt sveitahótel. Aðalmálið, þegar við keyrðum á milli, var að passa sig að keyra ekki á hreindýrin en það var mjög mikið af þeim á svæðinu.“Grafa í fullri stærð gerð úr graníti sem stendur fyrir utan verktakafyrirtækið Stangeland.Sérstakur vinnustaður Næst lá leiðin til Stavanger þar sem Gylfi réð sig sem vélamann við gangagerð í Solbakktunnelen. „Flokkurinn okkar sá um að sprengja lagnaskurðinn og laga yfirborð undir vegagerð. Þar var ég fljótlega gerður að verkstjóra yfir minni vakt sem samanstóð af þremur Íslendingum og einum Slóvaka til að byrja með.“ Hann segir Solbakktunnelen vera ansi mögnuð göng. „Um er að ræða tvöföld átta km löng göng á milli bæjar sem heitir Tau, þar sem við bjuggum, og Stavanger og fara tæplega 300 metra undir sjávarmál. Meirihlutinn af efninu úr göngunum var keyrður út á færibandi frá brjóti sem muldi það niður. Efnið var síðan nýtt til fyllingar í sjó undir vegstæði að göngunum. Einnig var notast við Búkollur til aksturs.“ Gylfi segir þetta hafa verið á margan hátt skrítinn vinnustað. „Slóvakar voru í meirihluta starfsmanna en svo voru Svisslendingar frá Marti sem stjórnuðu verkinu. Hlutirnir voru í ansi föstum skorðum og erfitt að fá breytingar í gegn. Svisslendingarnir stóðu ansi fastir á sínu þó að það væru oft á tíðum skiptar skoðanir um þekkingu þeirra. Síðan tóku Íslendingar við yfirstjórninni en þegar upp var staðið bætti það ekkert úr skák, síður en svo. Vinnuandinn var samt mjög góður og oft gaman uppi í skála. Þarna eignaðist ég góða vini sem ég er enn þá í sambandi við og var mjög gaman að kynnast svona samfélagi þar sem menn frá hinum ýmsu löndum voru samankomnir.“Unnið að járnabindingum í skálanum í Ytre Sortvik.Ferðaðist mikið Vélaflotinn var mjög öflugur og fjölbreyttur, segir Gylfi, eins og gengur og gerist á svona stórum vinnustað, auk þess sem mjög öflugt verkstæði var á staðnum. „Þarna var mikið borað og sprengt og það var stundum óþægilegt að vera í göngunum þegar það var verið að sprengja en það vandist nú fljótlega.“ Árið í Noregi var góður tími og honum þótti að mörgu leyti mjög gott að vera þar. „Við Bragi Pálsson, félagi minn, vorum mjög duglegir að keyra um á frídögunum og skoða okkur um. Einnig var bátur á svæðinu sem við notuðum óspart. Þarna er mikil náttúrufegurð og margt fróðlegt að sjá, t.d ýmislegt í tengslum við seinni heimsstyrjöldina. Hið eina var að verðlagið var okkur mjög óhagstætt og því eyddum við litlum tíma í verslunum. En Noregur er á margan hátt spennandi land og aldrei að vita hvað maður gerir í framtíðinni. Kannski á maður eftir að enda þarna aftur, hver veit?“
Mest lesið Dæmi um kolranga áætlun Skattsins Neytendur Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Viðskipti innlent Þarf stundum að kalla á eiginkonuna „komdu að sofa ástin“ Atvinnulíf Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Viðskipti innlent „Biðröðin er löng“ Viðskipti innlent Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Viðskipti innlent Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Opið fyrir innsendingar í Lúðurinn 2025 Samstarf Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk S4S-veldið tekur við Lindex Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Bíllinn þremur milljónum dýrari Sjá meira