Vandræði Knicks halda áfram: Noah dæmdur í 20 leikja bann Kristinn Páll Teitsson skrifar 25. mars 2017 17:00 Noah hefur ekki fundið fjölina í treyju Knicks. Vísir/getty
Það er óhætt að segja að fyrsta tímabil Joakim Noah í herbúðum New York Knicks hafi ekki gengið eins og í sögu en eftir slappa frammistöðu í allan vetur var hann í dag dæmdur í 20 leikja bann af deildinni fyrir ólöglega lyfjanotkun. Noah samdi síðastliðið sumar við New York Knicks eftir níu ár í herbúðum Chicago Bulls sem valdi hann á sínum tíma með níunda valrétt í nýliðavali NBA-deildarinnar árið 2007. Skrifaði hann undir fjögurra ára samning sem hljómaði upp á 72 milljónir dollara eða tæplega átta milljarða íslenskra króna en hann er með 5 stig og 8,7 frákast að meðaltali í leik í vetur. Hefur honum aldrei tekist að sýna sitt rétta andlit í treyju Knicks eftir að hafa verið valinn í úrvalslið deildarinnar 2014 ásamt því að vera valinn varnarmaður ársins sama ár. Mun hann því aðeins taka þátt í 46 leikjum af 82 á þessu ári en hann tók aðeins þátt í 29. leikjum af 82 á síðasta tímabili sínu í treyju Chicago Bulls. Noah hefur ekki leikið með liði Knicks í tæplega tvo mánuði og var vitað að hann myndi missa af síðustu tíu leikjum tímabilsins en hann mun ásamt því byrja næstu leiktíð í banni.
NBA Mest lesið PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti „Betra liðið tapaði” Fótbolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport Fleiri fréttir Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Sjá meira