Borgin innheimti afgreiðslugjald án lagaheimildar Jóhann Óli Eiðsson skrifar 5. janúar 2017 07:00 Gjaldið nam 10.500 krónum. Þeim tilmælum var beint til borgarinnar að endurgreiða hið ólögmæta gjald. vísir/stefán
Reykjavíkurborg innheimti gjald fyrir svör við spurningum um gildandi deiliskipulag án þess að hafa til þess neina lagaheimild. Þetta kemur fram í áliti umboðsmanns Alþingis sem birt var í gær. Kvartandi hafði verið í samskiptum við borgina til að fá því svarað hvort fyrirhuguð bygging hans á bílskúr myndi rúmast innan núgildandi deiliskipulags. Í kjölfar þeirra beið hans greiðsluseðill í heimabanka upp á 10.500 krónur. Kom þá í ljós að borgin rukkaði það gjald fyrir það eitt að svara fyrirspurnum. Eftir þessi samskipti við borgina var afráðið að kvarta til umboðsmanns. Í niðurstöðu umboðsmanns kemur fram að samkvæmt orðalagi gjaldskrár Reykjavíkurborgar, og gjaldtökuheimildar í skipulagslögum, væri ljóst að gjaldtakan tæki til erinda sem lytu að breytingum á gildandi skipulagi. Hins vegar væri engin heimild til að innheimta gjald ef aðili hefði ekki óskað eftir breytingum á gildandi skipulagi. Það var því niðurstaða umboðsmanns að óheimilt hefði verið að krefjast þess að umrætt afgreiðslugjald yrði innt af hendi. Beindi hann þeim tilmælum til borgarinnar að hún endurgreiddi gjaldið og að hún tæki í framtíðinni mið af þeim sjónarmiðum sem fram kæmu í álitinu. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Myndir: Allt á floti í Kringlunni Innlent Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Innlent Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Innlent Flúðu vettvang eftir harðan árekstur Innlent „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Innlent Konungsskip Dana í Reykjavík Innlent Björgunarsveitir sinntu reiðslysi og gönguslysi í gær Innlent Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Innlent „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Innlent Laxateljari greinir eldislaxa frá villtum löxum Innlent Fleiri fréttir Búðareigendur aðstoðuðu slökkviliðsmenn Flúðu vettvang eftir harðan árekstur Slökkvistarf í Kringlunni og staða Vinstri grænna Laxateljari greinir eldislaxa frá villtum löxum Ferðaþjónustan, þingmálin og Running Tide í Sprengisandi Björgunarsveitir sinntu reiðslysi og gönguslysi í gær Myndir: Allt á floti í Kringlunni Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Konungsskip Dana í Reykjavík „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Safnað fyrir gróðurskála á Kirkjubæjarklaustri „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Flókið verkefni og mikið tjón í Kringlunni Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Eldur í Kringlunni og Kristján Loftsson um hvalveiðileyfið Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Héldu fyrst að þetta væri brunaæfing Sigurður Ingi ekki búinn að undirrita Isavia-samning Eldur logar í þaki Kringlunnar Björgunarsveit kölluð út í Þórsmörk Áhyggjur af vanda drengja í menntakerfinu óþarfar Þyrlan kölluð út vegna reiðslyss Kjósendur Jóns Gnarr líklegastir til að vera ósáttir með Höllu Vilja banna hvalveiðar með lögum Áttatíu prósent af plasti í fjörum landsins kemur frá útlöndum Efast um að ráðherrar nái fram markmiði sínu Tveimur haldið sofandi vegna slyssins Rútuslys í Öxnadal og meintar rangfærslur ráðherra Guðni snýr aftur í sagnfræðina Leita að nýju húsnæði fyrir kaffistofu Samhjálpar Sjá meira