Íhlutirnir til stækkunar á framdrifinu, sem verður eftir breytingu 8,5 tommur, kemur frá Nissan í Ameríku og passa beint í framdrifið á Navara. Eftir breytinguna á framdrifinu er undirvagninn orðinn með því sterkasta sem völ er á. "Við erum mjög ánægðir með útkomuna og ljóst að þessi nýja útgáfa af Navara er heppilegur bíll til breytinga“ segir Loftur Ágústsson markaðsstjóri BL.
Navara pallbíllinn kemur með driflæsingu að aftan frá framleiðanda en Arctic Trucks setti síðan ARB loftlæsingu í framdrifið. Fjörðunin að framan og aftan hefur verið lengd með FOX Performance dempurum sem bæta aksturseiginleika við erfiðar aðstæður og auðvelda ökumanni að beita bílnum að fullu afli.
„Við erum bæði spenntir og stoltir að kynna þessa nýju AT38 útfærslu af Navara. Við höfum undanfarið lagt mikla áherslu á að kynna þennan nýja bíl sem hefur hlotið lof þeirra sem til þekkja og nægir að nefna að hann var valinn af íslenskum bílablaðamönnum bíll ársins í sínum flokki 2017 auk þess sem hann sigraði í sparaksturskeppni FÍB í sumar. Og nú ætlum við bjóða fólki að koma og reynsluaka Navara í alvöru jeppa útfærslu“ sagði Loftur að lokum.
