„Featured snippets in search“ býður upp á stutt svör við algengum spurningum á leitarvél fyrirtækisins. Þá notar Google Home viðmótið við að svara spurningum notenda.
Viðmótið hefur þó deilt röngum fréttum, áróðri og hreinum lygum til notenda. Þá hefur Google Home svarað spurningum notenda með lygum sem bornar eru fram sem sannleikur, án annarra heimilda. Google Home vísar þó til heimasíðunnar sem hún fékk svarið frá.
Sem dæmi, má hér sjá blaðamann BBC spyrja Google Home um helgina hvort að Barack Obama, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, sé að skipuleggja valdarán í Bandaríkjunum.
And here's what happens if you ask Google Home "is Obama planning a coup?" pic.twitter.com/MzmZqGOOal
— Rory Cellan-Jones (@ruskin147) March 5, 2017
The Outline hefur tekið niður fjölda svara sem hafa beinlínis verið röng. Meðal annars hefur leitarvél Google vísað til rangrar fréttar um að fimm forsetar Bandaríkjanna hafi verið meðlimir í Ku Klax Klan, að Obama ætli að setja herlög á Bandaríkin, að msg valdi heilaskaða og ýmislegt fleira.
Google segir viðmótið fylgja ákveðnum reikniformúlum, en þegar starfsmönnum fyrirtækisins sé bent á furðuleg svör, sé alltaf brugðist við því.
Google Home:
— Danny Sullivan (@dannysullivan) March 5, 2017
"Yes, republicans = nazis" pic.twitter.com/7HVQjyjbEq