Einkaaðili í Póllandi rannsakar hvarfið á Arturi Nadine Guðrún Yaghi skrifar 13. apríl 2017 18:45
Fjölsklda Arturs Jarmoszko, sem saknað hefur verið í fjörutíu daga, hefur ráðið einkaaðila í Póllandi til að rannsaka hvarfið á honum. Þá hafa pólskir miðlar sýnt málinu áhuga og segir pólskur blaðamaður sem staddur er hér á landi að mörgum spurningum sé ósvarað í tengslum við málið. Arturs hefur verið saknað frá 1. mars síðastliðinum. Hann er 26 ára karlmaður frá Póllandi en hefur verið búsettur á Íslandi í nokkur ár. Þriðjudaginn 28. febrúar fór hann einn í Laugarásbíó og notaði hann strætó til að komast þangað. Eftir sýninguna fór hann niður í miðbæ Reykjavíkur þar sem hann sást taka peninga úr hraðbanka í eftirlitsmyndavél. Nokkru síðar greindi símamastur við Kársnes í Kópavogi merki úr síma Arturs. Björgunarsveitarmenn og þyrla landhelgisgæslunnar leituðu hans í á svæðinu frá Gróttu og að Álftanesi, en þeirri leit var formlega hætt eftir nokkra daga, án árangurs. Fjölskylda Arturs óttast að Arturi hafi verið unnið mein og eru gagnrýnin á lögregluna hér á landi og segja hana ekki hafa sinnt rannsókn málsins nægilega. Þau ákváðu því að ráða pólskan einkaaðila til að rannsaka málið, en slíkt tíðkast í Póllandi. Þá hafa pólskir fjölmiðlar sýnt málinu áhuga og er pólskur blaðamaður staddur hér á landi í þeim tilgangi að fjalla um málið. Hann telur að það sé mörgum spurningum ósvarað í málinu og tekur undir gagnrýni fjölskyldu Arturs. Robert hefur verið í sambandi við einkaaðilann sem hann segir að muni koma hingað til lands á allra næstu dögum. Guðmundur Páll Jónsson lögreglufulltrúi segir að rannnsókn málsins sé enn í gangi þó formlegri leit hafi verið hætt, nema nýjar vísbendingar berist. Hann segir lögreglu vera meðvitaða um rannsókn einkaaðilans í Póllandi á málinu en að ekki standi til að lögreglan verði partur af þeirri rannsókn sem stendur. Þá segir hann ekkert benda til þess að eitthvað saknæmt hafi átt sér stað.
Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Maðurinn skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Máttu tæma lónið Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Fleiri fréttir Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Sjá meira