Lengsti reynsluaksturinn Finnur Thorlacius skrifar 2. janúar 2017 15:47 Toyota bílar í Andesfjöllunum í Argentínu um daginn.
Árið 2014 hóf Toyota einn lengsta reynsluakstur á bílum fyrirtækisins sem um getur. Þá var farin 20.000 km ferð á nokkrum af bílgerðum Toyota um Ástralíu og það á álfunnar verstu vegum, enda meiningin að prófa bílana við erfiðustu aðstæður og finna í leiðinni einhverja galla á bílunum. Næsta ár var förinni heitið til N-Ameríku og þar eknir 28.000 kílómetrar á bílgerðunum Land Cruiser, Tundra, Highlander, Camry, Corolla og Mirai. Bílunum var ekið í sama tilgangi, að finna gallana ef einhverjir væru og spjalla í leiðinni við aðra Toyota eigendur og Toyota umboð og fá svör við því hvort yfir einhverju væri að kvarta eða betur mætti fara í smíði bílanna. Á nýliðnu ári stóð þriðji reynsluaksturinn yfir og farið um S-Ameríku og á bílgerðunum Land Cruiser, Hilux, Fortuner, RAV4, Etios, Corolla og Prius. Næstu 3 ár verður farið í samskonar ferðir um Evrópu, Asíu og Afríku og árið 2020 verður farin ferð um Japan, en þar í landi verða Ólympíuleikarnir haldnir og markar það ár síðasta árið sem þessi ógnarlangi reynsluakstur fer fram, alls í 7 ár. Þá verða alls 210.000 kílómetrar lagðir að baki og vonandi í leiðinni komin mörg svör um gæði bílanna og vankanta sem nýtast má til enn betri framleiðslu á Toyota bílum. Þá verða þátttakendur í akstrinum langa orðnir 1.000 talsins og það flestir starfsmenn Toyota. Afar metnaðarfullt verkefni hjá Toyota og örugglega í leiðinni skemmtilegt, en umfram allt gagnlegt. Í leiðinni er það mjög lýsandi fyrir stöðugan ásetning þeirra Toyota manna að bæta bíla sína sem mest má vera.Komnir í rúmlega 3.700 metra hæð í San Antonio de los Cobres í Argentínu.
Mest lesið Fékk sex milljónum of há laun og neitaði að endurgreiða þau Innlent Vann skemmdir á golfvelli og skildi eftir smokk Innlent Tollar á vörur frá Íslandi verða 15 prósent samkvæmt forsetatilskipun Erlent Þjóðhátíð í Eyjum: Farþegafjöldi í Herjólfi komi á óvart Innlent Sakar sveitastjórann um atvinnuróg og „kæfandi klámhögg“ Innlent Annasamt ár á Bessastöðum: Kóngafólk, keisari, umtöluð undirskrift og brúnir skór Innlent Þyrlan farin vestur í hvítabjarnareftirlit Innlent Freista þess að hindra að Bandaríkin fargi miklu magni getnaðarvarna Erlent Arabaríkin sameinast um afvopnun Hamas og fordæmingu á árásunum 7. október Erlent Skýrara hvar besta veðrið verður um helgina Innlent