Þetta var náttúrulega áttræðisafmæli Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 9. desember 2017 11:45 "Ég verð náttúrlega að vinna eins og alltaf en ég mun hitta vini mína og borða með þeim einhvers konar þakkargjörðarmáltíð. Það verður fínt,“ segir Björgvin Franz. Vísir/Anton Brink
Já, það er rétt, ég var nú bara búinn að gleyma því, stundum er það svona þegar mikið er að gera,“ sagði Björgvin Franz Gíslason þegar hann var minntur á fertugsafmælið sem er í dag. Samtalið átti sér reyndar stað fyrripart vikunnar og þá var hann á fullu að æfa fyrir tónleikana Hnallþórujól ásamt Esther Jökulsdóttur en nú eru þeir tónleikar yfirstaðnir þetta árið. Óður til hinna amerísku jóla, að sögn Björgvins. „En ég er búinn að halda upp á fertugsafmælið,“ tekur hann fram. „Við héldum sameiginlega upp á fertugsafmælin, ég og konan mín Berglind Ólafsdóttir, því hennar var 28. nóvember og mitt núna 9. desember. Það var svaka veisla. Þetta var náttúrlega áttræðisafmæli og okkur fannst alveg tilvalið að halda það í félagsheimili aldraðra uppi í Hraunbæ 105. Það var æðislega gaman,“ segir hann og lýsir partíinu nánar. „Það kom hópur úr Ellyjarsýningunni og tók lagið. Svo gáfu pabbi og mamma okkur uppistand með Ara Eldjárn í afmælisgjöf. Honum fannst það sniðugt að gefa afmælisgjöf sem ekki væri hægt að skila. Ari sló alveg í gegn. Var alveg hápunkturinn. Svo er ein kona í bænum sem gerir snittur og brauðtertur upp á danska móðinn, hún Guðrún Karólína hjá Smurbrauðsstofu Silju. Hvort tveggja var sko algert listaverk og okkur fannst það líka vel við hæfi að vera með svona mikið af brauðtertum í áttræðisafmælinu!“ Þó svo stórafmælið beri nú upp á laugardag segir Björgvin Franz það bara verða aukaglaðning. „Ég verð náttúrulega að vinna eins og alltaf en ég mun hitta vini mína og borða með þeim einhvers konar þakkargjörðarmáltíð. Það verður fínt.“ Björgvin Franz hefur nóg að gera í leikhúsinu. Hann slær í gegn í ýmsum hlutverkum í sýningunni Elly, meðal annars sem Raggi Bjarna. Það er ekkert lát á vinsældum þeirrar sýningar og eflaust fá einhverjir miða á hana í jólagjöf. „Svo er alltaf eitthvað af litlum verkefnum inn á milli hjá mér, fyrir utan að vera fjölskyldufaðir,“ segir hann og er í framhaldinu spurður um barnafjölda á heimilinu. „Við eigum eina dóttur sem er að verða níu ára og svo er önnur sextán. Byrjuðum svolítið snemma í barneignunum og erum glöð með það núna.“gun@frettabladid.is
Mest lesið Hvernig bíla eiga frambjóðendur? Bílablinda, lögregluleyfi og draumur um Volvo Lífið „Við erum öll byrjendur á einhverjum tímapunkti“ Lífið „Ég verð að komast til Japan“ Lífið Sonurinn skírður Lífið Myndaveisla: Mari og Guðni féllust í faðma á ögurstundu Lífið Stærstu stjörnur rappsins bera hvor annan þungum sökum Lífið Stjörnulífið: Líf og fjör og ástin blómstar Lífið Neyslan var orðinn algjör þrældómur Lífið Mörg hundruð manns á opnun kosningamiðstöðvar Katrínar Lífið Gylfi og Alexandra eiga von á barni Lífið Fleiri fréttir Endurgerðu Síðustu kvöldmáltíðina eftir síðustu pylsuna Myndaveisla: Svana töfraði fram suðræna veislu fyrir UAK Myndaveisla: Mari og Guðni féllust í faðma á ögurstundu Stærstu stjörnur rappsins bera hvor annan þungum sökum Baulað á Kim Kardashian þegar Brady var grillaður Söngskóli Sigurðar Demetz með Oklahoma í Borgarleikhúsinu Fleiri svartsýnir á gott gengi Heru Sumarlegir réttir að hætti Jönu Emilíana Torrini kemur fram í Hörpu Búa til barnaefni á íslensku á Youtube Er hægt að skjóta í gegnum byssukúlu? Blóm og plöntur sem þola kuldann Neyslan var orðinn algjör þrældómur Stjörnulífið: Líf og fjör og ástin blómstar Martröð að fara á útikamar í svartamyrkrinu í Eistlandi sem barn Bítið í beinni „Ég verð að komast til Japan“ „Við erum öll byrjendur á einhverjum tímapunkti“ Sonurinn skírður Gylfi og Alexandra eiga von á barni Bernard Hill er látinn Krakkatían: Kolbeinn kafteinn, langspil og hvolpar Hvernig bíla eiga frambjóðendur? Bílablinda, lögregluleyfi og draumur um Volvo Vinskapurinn og gleðin staðið upp úr Mörg hundruð manns á opnun kosningamiðstöðvar Katrínar Tróð upp í Norræna partýinu Gaman að geta grætt fólk á góðan hátt Bakaríið í beinni Fréttatía vikunnar: Lögreglan, körfubolti og frambjóðendur Fjórar dýrindis diskósúpur úr hráefnum sem annars hefði verið hent Sjá meira