Íslenska fyrirtækið Endor verðlaunað af Hewlett Packard Daníel Freyr Birkisson skrifar 21. nóvember 2017 14:23 Guðbrandur R. Sigurðsson, Arnar Kjærnested og Davíð Þ. Kristjánsson frá Endor. mynd/aðsend
Uppýsingafyrirtækið Endor hlaut nú á dögunum Hector verðlaunin frá Hewlett Packard Enterprise (HPE) sem hástökkvari ársins 2017. Eru verðlaunin veitt fyrir mestan vöxt samstarfsaðila HPE í Danmörku og Íslandi á árinu 2017 samanborið við árið á undan. Í umsögn dómnefndar kemur fram að Endor hljóti verðlaunin fyrir mikinn vöxt á árinu 2017 og þá einkum í tengslum við gagnageymslulausnir, en Endor var einn söluhæsti samstarfsaðilinn í Evrópu á sölu lausna frá birgjanum Nimble Storage sem HPE keypti nýlega. Þar kemur einnig fram að Endor sé með mikla þekkingu á miðlægum búnaði og gagnaverstengdum lausnum, skilji þarfir viðskiptavina og þær umbreytingar sem eru að eiga sér stað og veiti viðskiptavinum gæðaráðgjöf varðandi val á viðeigandi lausnum. Þrír af stofnendum Endor, Guðbrandur R. Sigurðsson, Arnar Kjærnested og Davíð Þ. Kristjánsson, veittu verðlaununum viðtöku í árlegum viðhafnarkvöldverði til heiðurs samstarfsaðilum HPE í Kaupmannahöfn. Endor er ráðgjafar- og þjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig í að hámarka rekstrarhagkvæmni fjárfestinga í upplýsingatækni og nýtir til þess nýjustu tækni í sjálfvirknivæðingu. Meðal viðskiptavina fyrirtækisins eru Íslandsbanki, RÚV, Ölgerðin og Íslandshótel. Auk þess sinnir Endor franska upplýsingatæknifyrirtækinu ATOS, sem sinnir til að mynda lykilhlutverki varðandi upplýsingatæknimál Ólympíuleikanna.
Mest lesið Bensínverð hefur lækkað Viðskipti innlent Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Atvinnulíf Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Viðskipti erlent Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Viðskipti innlent Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Viðskipti innlent Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Viðskipti innlent Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Viðskipti erlent Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Viðskipti innlent Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Viðskipti innlent Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Viðskipti erlent Fleiri fréttir Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Sjá meira