Paul George orðinn samherji Westbrooks Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 1. júlí 2017 12:30 Paul George var valinn framfarakóngur NBA-deildarinnar 2013. vísir/getty
Það er nóg um að vera á leikmannamarkaðinum í NBA-deildinni í körfubolta þessa dagana. Indiana Pacers hefur skipt stjörnuleikmanninum Paul George til Oklahoma City Thunder. Þar hittir hann fyrir verðmætasta leikmann NBA á síðasta tímabili, Russell Westbrook. Í staðinn fyrir George fékk Indiana bakvörðinn Victor Oladipo og framherjann Domantas Sabonis frá Oklahoma. Ekki er búist við því að George verði meira en eitt tímabil í herbúðum Oklahoma en flestir búast við því að hann fari til Los Angeles Lakers næsta sumar. Hinn 27 ára gamli George var afar eftirsóttur eftir að tímabilinu lauk en hann var m.a. orðaður við Cleveland Cavaliers, Boston Celtics og Houston Rockets. George var valinn númer 10 í nýliðavalinu 2010. Hann var kominn í hóp bestu leikmanna NBA þegar hann meiddist illa á æfingu með bandaríska landsliðinu sumarið 2014. George spilaði aðeins sex leiki með Indiana tímabilið á eftir. Undanfarin tvö tímabil hefur George haldist heill og skilað flottu verki inni á vellinum. Á síðasta tímabili var hann með 23,7 stig, 6,6 fráköst og 3,3 stoðsendingar að meðaltali í leik.
NBA Mest lesið PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Sport „Betra liðið tapaði” Fótbolti Fleiri fréttir Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Sjá meira