Fimmtán ára gömul Bridget Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar 18. febrúar 2016 10:00 Bridget lendir í ýmsum kómískum og skemmtilegum atvikum sem vís eru til þess að snúa upp á brosvöðva áhorfenda.
Kvikmyndina Bridget Jones’s Diary kannast sjálfsagt flestir við en hún segir frá hinni þrítugu, bresku, einhleypu og síreykjandi Bridget Jones sem leikin er af Renée Zellweger. Þegar leikar hefjast starfar Bridget hjá bókaútgáfu í London, hundleiðist starfið og eini jákvæði punkturinn við það er hinn myndarlegi yfirmaður hennar, Daniel Cleaver, sem leikinn er af breska hjartaknúsaranum Hugh Grant en hann er þrátt fyrir að vera sjarmerandi ekki allur þar sem hann er séður. Bridget er auk þess að vera óheppin í ástarmálunum með krónískar áhyggjur af holdafari sínu, því að vera einhleyp og er ofan á allt saman fremur seinheppin að eðlisfari. Myndin segir frá kómísku ástarlífi hennar og samböndum við þá Daniel Cleaver og lögfræðingnum Marc Darcy, leikinn af Colin Firth, sem hún kynnist í nýársteiti hjá foreldrum sínum þar sem hann er nýskilinn og klæddur upp í ósmekklega jólapeysu. Einnig skipa dagbókarskrif hennar stóran þátt í söguþræði myndarinnar en Bridget byrjar að skrifa í dagbók í upphafi nýs árs þegar hún ákveður að fara í sjálfsskoðun og verða besta útgáfan af sjálfri sér. Eitthvað sem sumir kannast sjálfsagt við. Myndin er byggð á samnefndri skáldsögu Helen Fielding sem er að ákveðnu leyti endurtúlkun á Pride and Prejudice eftir Jane Austen. Myndin kom út árið 2001 og fagnar því fimmtán ára afmæli á árinu. Óhætt er að segja að hún hafi heldur betur slegið í gegn víðsvegar um heiminn og margir samsamað sig hinni komplexeruðu en stórkostlega sjarmerandi Briget. Árið 2004 kom svo út framhaldsmyndin Bridget Jones: The Edge of Reason sem einnig hlaut jákvæð viðbrögð og skartaði sömu aðalleikurum. Nú er í pípunum þriðja myndin um Bridget og ber sú nafnið Bridget Jones‘s Baby og er sögð væntanleg í kvikmyndahús í september á þessu ári. Þau Renée Zellweger og Colin Firth fara bæði með hlutverk í myndinni en Hugh Grant er fjarri góðu gamni en maður kemur í manns stað og fer Patrick Dempsey, sem lék í Grey‘s Anatomy, með hlutverk í myndinni. Líkt og nafn myndarinnar gefur til kynna þá mun hún fjalla um Bridget með barni en samkvæmt erlendum miðlum er söguþráðurinn eitthvað á þá leið að hin ennþá einhleypa Bridget kemst að því að hún er þunguð. Ákveðið babb kemur þó í bátinn þar sem hún er ekki viss um hver er faðir barnsins.
Bíó og sjónvarp Mest lesið Hryllingur og hiti á klúbbnum Lífið „Götustelpan“ glöð Lífið „Ég fæddist nefnilega á endalausu breytingarskeiði“ Lífið samstarf Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið Stjörnurnar fögnuðu flúruðum Maroni Tónlist Ekki gálgadans heldur hæ dúddelí dæ Gagnrýni Fær nafn átta árum eftir opinberun Leikjavísir Stefna á gullið með tíu tonn í farteskinu Matur „Ég er enn að venjast andlitinu á mér“ Bíó og sjónvarp Hinsegin ást í loftinu Lífið Fleiri fréttir „Götustelpan“ glöð Hryllingur og hiti á klúbbnum Hvernig fílarðu böndin á Airwaves? Fundu ástina á Domino's Klöppuðu fyrir ofan höfuð á Frikka Dór Ellý er röddin sem þúsundir manna heyra á hverjum degi Hinsegin ást í loftinu Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Tæplega þriggja áratuga löng gönguferð á enda Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Íslensk listakona sló í gegn í Miami Safna í minningu Johns Snorra fyrir munaðarlaus börn Ólafía Þórunn orðin þriggja barna móðir „Erum bara vinir“ Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Arnór Sig kominn á fast Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Vonlaust að gagnrýna vini sína Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Níutíu og einn meistari útskrifaðist Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Sjá meira
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“