Ráðstafa 180 milljónum til að auka öryggi ferðamanna Atli Ísleifsson skrifar 23. júní 2016 19:23 Lagt er til að löggæsla vegna ferðamanna á helstu ferðamannasvæðum verði efld og gerð sýnilegri yfir sumarið. vísir/pjetur
Ríkisstjórnin hefur samþykkt að tillögu um ráðstöfun fjár í verkefni til að auka öryggi ferðamanna og annarra vegfarenda. Samtals verður 178 milljónum varið á árinu til að efla löggæslu og þjónustu Vegagerðarinnar auk þess sem hálendisvakt Slysavarnafélagsins Landsbjargar verður styrkt. Í frétt á vef innanríkisráðuneytisins segir að ferðaþjónustan sé orðin ein meginstoð íslensks atvinnulífs og í kjölfar fjölgunar ferðamanna sé ljóst að aukið álag sé á ýmsa innviði samfélagsins sem bregðast þurfi við, einkum er varði vegakerfið og öryggisþætti. „Helstu þættir þessa átaks eru:Öryggi á vegum Vegagerðin bætir merkingar við einbreiðar brýr og annast úrbætur við hættuleg gatnamót af eigin rekstrarfé en nýtir viðbótarframlag til að setja upp lokunarhlið eða efla merkingar þar sem þess er þörf á ýmsum fjall- og hálendisvegum; bæta veg austan Geysis; setja upp skilti við varasöm vöð og sinna auknu viðhaldi á hálendisvegum. Kostnaður vegna þessara þátta er um 80 milljónir króna. Þá skal tekið fram að Vegagerðin ver nú þegar 385 milljónum króna til verkefna í tengslum við umferðaröryggi og eru viðhalds- og þjónustuliðir nýttir í þessum tilgangi árið 2016.Löggæsla Lagt er til að löggæsla vegna ferðamanna á helstu ferðamannasvæðum verði efld og gerð sýnilegri yfir sumarið. Svæðin eru Gullni hringurinn og uppsveitir Árnessýslu, hálendið sunnanlands, hálendið á Norðurlandi eystra og Suðausturland. Á hverju svæði yrði bætt við einni lögreglubifreið og samtals fjórum lögreglumönnum á vöktum. Heildarviðbótarkostnaður vegna þessa er metinn á 98 milljónir króna.Hálendisvakt björgunarsveitanna Slysavarnafélagið Landsbjörg hefur staðið að hálendisvakt með um tvö hundruð sjálfboðaliðum og er fyrirhugað er að hún verði á þremur stöðum í júlí og ágúst. Er nokkur þúsund ferðamönnum liðsinnt á hverju sumri og er verkefnið styrkt með fimm milljónum króna,“ segir í fréttinni. Tillögur að verkefnum sem settar voru fram byggjast á vinnu starfshóps ráðuneytisins um öryggi ferðamanna sem Stjórnstöð ferðamála útfærði nánar.
Mest lesið Enok sakfelldur Innlent Framkoman eftir flogið niðurlægjandi og meiðandi Innlent Fara í saumana á sendiherraskipunum Innlent Einn umdeildasti kennari landsins lætur af störfum Innlent Skoða að hefja gjaldtöku við Gróttu Innlent Ólga meðal íbúa vegna fyrirhugaðra framkvæmda Innlent Stunginn í heimahúsi í Súðavík Innlent Óhollar vörur drepa fjórðung Evrópubúa Erlent Dómsmálaráðherra skammar fjármálaráðherra fyrir afskipti Innlent Sér ekki fyrir sér hvalveiðar í sumar Innlent Fleiri fréttir Pólitísk afskipti ráðherra tilefni til alvarlegra áhyggja Árekstur á Höfðabakkabrú Einn af hverjum fjórum tók ákvörðun á kjördegi Fjölskylda frá Marokkó fær ekki að heimsækja ættingja á Íslandi Einn umdeildasti kennari landsins lætur af störfum Landsbyggðarskattur í formi bílastæðagjalda Dómsmálaráðherra skammar fjármálaráðherra fyrir afskipti Þakklát fyrir spurningar íbúa og varpa nýju ljósi á framkvæmdir Lögregla fámál um húsleit í máli Davíðs Viðarssonar Áfengissalar kvarta undan afskiptum ráðherra af lögreglu Flestir ánægðir með kjör Höllu Tómasdóttur Hrottaleg árás á átján ára mann enn til rannsóknar Bjarkey verði að sæta ábyrgð Bætt skólaeldhús fyrir íslensk fjárframlög Fara í saumana á sendiherraskipunum Enok sakfelldur Ólga meðal íbúa vegna fyrirhugaðra framkvæmda Á þriðja tug mála bíða afgreiðslu og óvissa um frestun þingfunda Vísbendingar um að lúsmýið sé komið á kreik Ákærður fyrir tilraun til manndráps á Ingólfstorgi Framkoman eftir flogið niðurlægjandi og meiðandi Stunginn í heimahúsi í Súðavík Verkjamóttakan hafi dregið verulega úr morfínlyfjanotkun Forsendur ríkisstjórnarinnar hafi verið slegnar af borðinu Dregur úr gasmengun með auknum vindi næstu daga Nektarmyndum fækkar meðal ungmenna Skoða að hefja gjaldtöku við Gróttu Sér ekki fyrir sér hvalveiðar í sumar Yrðu stórtíðindi í íslenskum stjórnmálum ef VG dytti út af þingi Bjarni ferðaðist um Malaví með vélinni sem fórst Sjá meira