Hlutabréf hafa rokið upp í Íran Sæunn Gísladóttir skrifar 16. febrúar 2016 15:40 Bílaumferð í Íran.
Hlutabréfamarkaðir víðsvegar um heiminn hafa verið sveiflukenndir frá byrjun árs og hefur gengi bréfa lækkað verulega á sumum mörkuðum. Sömu sögu er þó ekki að segja í Íran. Hlutabréf á Aðalmarkaði í Tehran hafa hækkað um 22 prósent frá því að viðskiptaþvingunum var aflétt í janúar og hafa hækkað um 25,6 prósent það sem af er ári. Þann 16. janúar síðastliðinn hættu Bandaríkin og Evrópusambandið að beita viðskiptaþvingunum gagnvart Íran sem hefur valdið því að landið hefur nú meiri aðgang en áður að heimsmörkuðum. Sérfræðingar hjá ACL, fjárfestingafyrirtæki sem sérhæfir sig í Íran, segja að fjárfestar dragist að lágu verðmati markaðarins og möguleikann á nýjum fjárfestingum og auknum hagvexti. Hlutabréfamarkaðurinn í Tehran er meðal þeirra fimm stærstu í mið-Austurlöndum, en yfir 300 fyrirtæki eru skráð á markaðinn með 100 milljarða dollara markaðsvirði, eða sem nemur 12.700 milljörðum króna. Markaðurinn er þó lítill í alþjóðlegum samanburði.
Mest lesið Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira