NBA-leikmaður missir milljónir eftir að hann beitti eiginkonuna ofbeldi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. október 2016 11:15 Darren Collison. Vísir/Getty
NBA-leikmaðurinn Darren Collison fær ekki byrja komandi tímabil í NBA-deildinni í körfubolta og ástæðuna má rekja til framkomu hans innan veggja heimilisins. Darren Collison hefur verið dæmdur í átta leikja bann og má heldur ekki þiggja laun á þeim tíma eftir að hann játaði að hafa beitt eiginkonu sína ofbeldi á heimili þeirra. ESPN segir frá. Collison fékk þriggja ára skilorðsbundin dóm auk þess að hann þarf að eyða tuttugu dögum í fangelsi. Atvikið gerðist í maí á heimili þeirra hjóna í úthverfi Sacramento. Darren Collison er núverandi leikmaður Sacramento Kings en hann hefur einnig leikið með liðum New Orleans Hornets, Indiana Pacers, Dallas Mavericks og Los Angeles Clippers. Hann hefur spilað í NBA-deildinni frá 2009. Darren Collison var með 14,0 stig og 4,3 stoðsendingar að meðaltali á síðustu leiktíð en tímabilið á undan, hans fyrsta með Kings, var hann með 16,1 stig og 5,6 stoðsendingar. Collison missir af átta fyrstu leikjum Sacramento Kings á leiktíðinni og hann missir einnig laun upp á rúma 380 þúsund dollara eða rúmlega 43 milljónir íslenskra króna. NBA-deildin sagði frá því í yfirlýsingu sinni að hún hafi staðið fyrir eigin rannsókn á máli Collison auk þess að leita til hóps sérfræðinga til að ákveða refsingu hans. Sacramento Kings hefur vitað í nokkurn tíma að liðið byrji tímabilið án leikstjórnanda síns og hefur að þeim sökum fengið til sín bæði Ty Lawson og Jordan Farmar. Fyrsti leikur Darren Collison á tímabilinu verður á móti New Orleans Pelicans 8. nóvember.
NBA Mest lesið PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Fleiri fréttir Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Sjá meira