Hagnaður WOW air margfaldast Sæunn Gísladóttir skrifar 22. nóvember 2016 09:36 Skúli Mogensen er forstjóri WOW air. Vísir/Villhelm
WOW air hagnaðist um 4,4 milljarða króna á fyrstu níu mánuðum ársins, samanborið við 1,5 milljarða króna hagnað árið 2015. Tekjur WOW air fyrstu níu mánuði ársins námu 27 milljörðum króna sem er 105 prósent aukning miðað við sama tímabil árið 2015. Rekstarhagnaður án afskrifta á fyrstu níu mánuðum ársins (EBITDA) var 5,9 milljarðar króna samanborið við 2,2 milljarða króna rekstrarhagnað árið 2015. Tekjur WOW air á þriðja ársfjórðungi 2016 námu um 15,3 milljörðum króna sem er 104 prósent aukning miðað við sama tímabil í fyrra. Rekstarhagnaður á þriðja ársfjórðungi (EBITDA) var 4,1 milljarður króna og jókst um 1,7 milljarða á milli ára. Hagnaður félagsins á þriðja ársfjórðungi var 3,5 milljarðar króna samanborið við 1,5 milljarða króna hagnaði á þriðja ársfjórðungi árið 2015, segir í tilkynningu. Á þriðja ársfjórðungi flugu 629 þúsund farþegar með WOW air sem eru aukning um 122 prósent á milli ára. Sætanýting á þriðja ársfjórðungi hélst í 90 prósent milli ára þrátt fyrir 153 prósent aukningu í framboðnum sætiskílómetrum. „Við höfum fjárfest mikið í uppbyggingu WOW air á undanförnum árum og ekki síst fyrir síðastliðið sumar þar sem við bættum við þremur nýjum Airbus A330 breiðþotum og hófum flug til Los Angeles og San Francisco. Til að mæta þessari miklu aukningu höfum við ráðið hundruði starfsmanna á árinu og heildarfjöldi starfsfólks WOW air er að nálgast 700 manns. Þetta er frábært teymi sem á mikinn heiður skilið eftir þrotlausa vinnu síðastliðin 5 ár og endurspeglast það í góðri afkomu félagsins,“ segir Skúli Mogensen forstjóri og stofnandi WOW air í tilkynningu.
Fréttir af flugi Mest lesið Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Sjá meira