Viðskipti innlent

Verslunin á Borg lokuð um skeið

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Verslunin á Borg.
Verslunin á Borg. vísir/pjetur
Rekstri verslunarinnar að Borg í Grímsnes- og Grafningshreppi hefur verið hætt. Mun sami rekstraraðili ekki opna þar aftur.

Húsnæðið sem verslunin var í er í eigu Olís. Sigríður Hrefna Hrafnkelsdóttir, framkvæmdastjóri smásölusviðs, segir nýjan aðila til þess að reka verslun þar fundinn og að opnað verði fljótlega að nýju.

Auk íbúa í Grímsnes- og Grafningshreppi hefur fjöldi sumarhúsaeigenda sótt verslunina þar árum saman.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×