Formannskosningin hefur ekki verið kærð Sveinn Arnarsson skrifar 15. október 2016 07:00 Tvær vikur eru til kosninga. Sigurður Ingi og Sigmundur hafa ekki ræst við síðan á flokksþinginu.
Engin formleg kæra hefur borist Framsóknarflokknum vegna formannskjörs flokksins á Flokksþinginu í Háskólabíói þann 2. október síðastliðinn. Þetta hefur Fréttablaðið fengið staðfest á skrifstofu Framsóknarflokksins. Framsóknarflokknum hefur þó borist ein ósk um að rannsakað yrði kjörbréf einstaklings sem taldi sig hafa átt að vera aðalmaður í Reykjavík. Hins vegar reyndist hún vera á lista yfir varamenn og því ekki haft kjörgengi í formmannskosningunum. Heimildir Fréttablaðsins herma að laganefnd flokksins sé með málið til umfjöllunar og muni skoða málið ofan í kjölinn. Forsvarsmenn aðildarfélaga skila inn listum til kjörbréfanefndar flokksins um aðal- og varamenn á flokksþinginu. Aðeins aðalmenn voru kjörgengir í formannskosningunum. Formannskosningin hefur verið mjög umdeild og sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, sem féll sem formaður flokksins, að rútur með fólki hafi byrjað að streyma að Háskólabíói í þann mun sem formannskosningin hófst. Sigmundur og Siguður Ingi hafa ekki enn talað saman síðan á flokksþinginu í upphafi mánaðarins og ekki hefur verið settur á fundur milli þeirra eða þeir talast saman símleiðis. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Kosningar 2016 Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust hluti af hrekk Innlent Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Innlent „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Erlent Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Innlent Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Erlent Fleiri fréttir Feðgar séu í haldi í tengslum við málið þar sem maður lést Vara við nálum í hrekkjavökunammi „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Sjá meira