Við hættum aldrei að vera landnemar Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 31. ágúst 2016 10:15 Jóhanna Friðrika og Kjartan Darri á sviði Samkomuhússins. Mynd/Auðunn
Helgi magri og Þórunn hyrna voru að flýja ófrið þegar þau stigu á land hér í Eyjafirði á sínum tíma í leit að betra lífi. Það er aðalinntakið í sýningunni hjá okkur. Við hættum aldrei að vera landnemar,“ segir Benedikt Karl Gröndal leikari. Hann fer með eitt af fjórum hlutverkum í sýningu Leikfélags Akureyrar, Helgi magri, sem verður frumsýnd í Samkomuhúsinu 2. september. Matthías Jochumsson skáld skrifaði leikritið í tilefni þúsund ára afmælis landnáms í Eyjafirði árið 1890, það hefur ekki verið sett upp síðan. „Sýningin var íburðarmikil en að margra mati eitt af verstu verkum Matthíasar enda afsakar hann sig í formálanum og kveðst hafa tekið sér skáldaleyfi,“ lýsir Benedikt. „Það eru tilfinningar í þessu verki,“ segir Benedikt Karl.Vísir/GVAÍ okkar sýningu eru fjórir trúðar sem segja söguna með sínum hætti og upp úr kafinu kemur að þetta er alls ekki slæmt leikrit, heldur konfektmoli hjúpaður í kærleika. Aðal trúðsins felst í að hann segir alltaf satt og stundum er sannleikurinn fyndinn og stundum sorglegur. En trúðarnir taka sér skáldaleyfi líka og hver sýning verður einstök því það sem liggur fyrir þann daginn verður tekið inn í.“ Listrænir stjórnendur og höfundar Helga magra, auk leikaranna, eru Jón Páll Eyjólfsson og Þóroddur Ingvarsson. Trúðarnir eru Benedikt Karl, Halldóra Malín Pétursdóttir, Jóhanna Friðrika Sæmundsdóttir og Kjartan Darri Kristjánsson. Benedikt segir trúðana stjórna tækninni á sýningum, það auki á spennuna að sjá hvort þeir klúðri málum eða standi sig.“ Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 31. ágúst 2016.
Menning Mest lesið Hvers vegna tölum við um bongóblíðu? Lífið Bubbi hrærður: Trúir því að Níu líf muni á endanum vakna að nýju Lífið Arnar Þór selur Arnarneshöllina Lífið Fréttatía vikunnar: Skúlptúrar, ráðherrarifrildi og EM Lífið Mömmu þykir ekki vænna um Friðrik Dór en Jón Ragnar Lífið Torfbærinn í Vesturbænum sem stóð fram á níunda áratuginn Lífið Heiður Ósk og Davíð eru nýtt par Lífið Líður bókstaflega óstöðvandi í góðu fitti Tíska og hönnun Fékk skyndihugmynd og er nú í blómahafi heima fyrir Lífið Tólf klukkustunda gjörningur í Hörpu í dag Lífið Fleiri fréttir Hvers vegna tölum við um bongóblíðu? Tólf klukkustunda gjörningur í Hörpu í dag Torfbærinn í Vesturbænum sem stóð fram á níunda áratuginn Bubbi hrærður: Trúir því að Níu líf muni á endanum vakna að nýju Fréttatía vikunnar: Skúlptúrar, ráðherrarifrildi og EM Arnar Þór selur Arnarneshöllina Á 90 þúsund servíettur í Hafnarfirði Heiður Ósk og Davíð eru nýtt par Fékk skyndihugmynd og er nú í blómahafi heima fyrir Einstakur Fender Telecaster í Hljóðfærahúsinu Fólk ferðist alla leið frá Ástralíu til að sækja Víkingahátíðina Tignarleg miðbæjaríbúð Helgu Ólafs til sölu Íslensk lopapeysa flutt milli heimsálfa vegna mestu eftirsjár ævinnar Breytti hænsnahúsi í verkstæði sitt Teknóhátíð á Radar alla helgina Enn neisti hjá Bad Bunny og Kendall Jenner Banjóleikari frá Nashville með Baggalúti og Sinfó Hugsar hlýtt til áranna í Los Angeles Aníta Briem og Hafþór eiga von á barni Selur húsið í Garðabæ eftir kaupin á glæsihúsi Ingu Lindar Sjö daga afmælissæla í Reykjanesbæ Þrjú hundruð börn reyna að dorga furðulegasta fiskinn Bara 33 ára og lífið á eftir að koma í ljós Daði keypti hús Jóns Jónssonar með mömmu sinni á yfirverði „Ég væri ekkert án þeirra“ Gekk í tvo tíma að flugvellinum til að komast hjá leigubílagjaldi Friðrik Ómar setur Reykhúsið aftur á sölu og lækkar verðið Linda lætur sér Lindarbraut lynda Áttaði sig á stöðunni á fundi með Höllu Ungt athafnapar keypti hönnunarhús Margrétar í Garðabæ Sjá meira