Hagnaður Símans nam 2,9 milljörðum Sæunn Gísladóttir skrifar 19. febrúar 2016 10:03 Tekjur árið 2015 námu 30,4 milljörðum, samanborið við 30,3 milljarða árið 2014.
Hagnaður Símans árið 2015 nam 2.875 milljónum króna og lækkaði um 399 milljónir milli ára. Á árinu 2014 varð söluhagnaður vegna krafna á Glitni, dótturfélags og fastafjármuna að fjárhæð 753 milljónir króna. Án þessara liða hækkar hagnaður á milli ára. Tekjur árið 2015 námu 30,4 milljörðum, samanborið við 30,3 milljarða árið 2014. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði EBITDA nam 8 milljörðum samanborið við 8,3 milljarða árið 2014. EBITDA hlutfallið er 24,6 prósent fyrir árið 2015, en var 27,4 prósent árið 2014. Vaxtaberandi skuldir námu 24,2 milljörðum króna í lok árs 2015 en voru 25,4 milljarðar í árslok 2014. Hreinar vaxtaberandi skuldir voru 20,1 milljarður króna í lok árs 2015 og lækkuðu um 1,3 milljarða á árinu 2015. Eiginfjárhlutfall Símans hf. var 52,8% í lok árs 2015 og eigið fé 32,8 milljarðar króna. „Síminn hefur nú betri burði til að sækja fram eftir afrakstur endurskipulagningar á samstæðunni á síðasta ári. Afkoman er í takt við áætlanir okkar, sem við kynntum í aðdraganda skráningar Símans á markað í október. Skipti, Síminn og Skjárinn sameinuðust á síðasta ári og upplýsingatæknisvið Símans var fært undir dótturfélagið Sensa. Vöruframboði samstæðunnar var breytt og fókusinn stilltur,“ segir Orri Hauksson, forstjóri í tilkynningu.
Mest lesið Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Viðskipti innlent Gengi Oculis hrynur Viðskipti innlent Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Viðskipti innlent Þegar átta stunda vinnudagur og fimm daga vinnuvika þóttu stórhættulegar hugmyndir Atvinnulíf Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Viðskipti innlent Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Viðskipti innlent Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf Fleiri fréttir Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Sjá meira