Ráðgjafi sem sat í stjórn Gunnars majones þarf að endurgreiða félaginu 880 þúsund krónur Birgir Olgeirsson skrifar 22. janúar 2016 15:24 Ráðgjafinn sagðist hafa tekið sæti í stjórn Gunnars majoness hf. að beiðni Kleópötru K. Stefánsdóttur framkvæmdastjóra fyrirtæksins. Vísir
Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt Evrópuráðgjöf-Alþjóðtengsl ehf. til að endurgreiða þrotabúi GM framleiðslu hf. 878 þúsund krónur. Málið varðar ráðgjöf sem eigandi Evrópuráðgjafar veitti GM framleiðslu á tímabilinu janúar til febrúar árið 2014 en þá hét GM framleiðsla Gunnars majónes hf. og hafði starfað frá árinu 1969. Framkvæmdastjóri Evrópuráðgjafar sat á sama tíma í stjórn Gunnars majónes hf. eða frá 31. júlí 2013 til 25. febrúar árið 2014. Hann gegndi einnig stöðu framkvæmdastjóra Gunnars ehf., sem keypti rekstur og eignir Gunnars majoness hf., frá mars árið 2014.190 milljóna króna skuld Á stjórnarfundi Gunnars majoness hf. 4. mars árið 2014 var bókað að skuldir félagsins nemi að minnsta kosti 190 milljónum króna og af því voru 95 milljónir króna í lögfræðilegri innheimti. Verulega slæm staða Félagið hafði þegar fengið á sig árangurslaust fjárnám á árinu 2013 og skuldaði lífeyrissjóðum verulegar fjárhæðir og var ekki til fé til að standa skil á þeim. Þá hafi félagið fullnýtt lánstraust sitt hjá birgjum og hafi félagið þurft að staðgreiða fyrir aðföng um allnokkurn tíma. Fyrirséð var að félagið gat ekki keypt aðföng til framleiðslunnar til að að halda starfsemi félagsins gangandi.Samið um kaup við Gunnars ehf. Var fyrirséð að stöðva þurfti starfsemi félagsins og segja upp öllum starfsmönnum. Samningsdrög lágu fyrir fundinum við félagið Gunnars ehf. en semja átti við félagið um kaup á öllu rekstri Gunnars majones. Ásamt tækjum og tölum og öðru sem rekstrinum tengdist. Gunnars ehf. tók einnig við ráðningarsamningum starfsmanna og áttu þeir að halda störfum sínum.Kleópötru falið að ganga frá lausum endum Söluverð rekstrarins var samkvæmt drögum 62,5 milljónir króna með 7,25 prósenta ársvöxtum til tíu ára með mánaðarlegum afborgunum. Á þessum fundi lá fyrir verðmat sem hafði verið unnið á Gunnars majónes hf. og var ákveðið að miða söluverð við lægri kant verðmatsins. Loks var bókað á þessum stjórnarfundi Gunnars majoness hf. í mars árið 2014 að framkvæmdastjóra félagsins, Kleópötru Kristbjörgu Stefánsdóttur, sem vikið hafði af fundi, hafi verið kynnt niðurstaða fundarins um að samþykkja sölu rekstrar félagsins samkvæmt fyrirliggjandi kaupsamningi. Var henni falið að ganga frá öðrum lausum endum sem kynnu að koma upp varðandi söluna og tryggja að yfirfærsla rekstrarins gengi greiðlega fyrir sig.Ráðgafinn tók sæti stjórn að beiðni Kleópötru Fyrir dómi sagði eigandi Evrópuráðgjafar-Alþjóðatengsla að hann hefði verið fenginn til að fara yfir verkferla, samninga við starfsmenn og samninga við birgja og viðskiptavini Gunnars majoness hf. Einnig hafi verið farið yfir markaðsstöðu fyrirtækisins. Hann sagðist hafa tekið sæti í stjórn Gunnars majoness hf. að beiðni Kleópötru.Töldu greiðsluna ívilnandi Þrotabú GM framleiðslu gerði þá kröfu að greiðslum frá GM framleiðslu til Evrópuráðgjafar-Alþjóðtengsla ehf. yrði rift. Sagði þrotabúið að greiðslurnar hefðu farið fram eftir frestdag og að greiðslan hefði verið ívilnandi fyrir ráðgjafafyrirtækið á kostnað annarra kröfuhafa og því brot á jafnræðisreglu skuldaskilaréttar.Neitaði að hafa vitneskju um slæma fjárhagsstöðu Eigandi ráðgjafafyrirtækisins neitaði því að hafa haft vitneskju um slæma fjárhagsstöðu Gunnars majoness og því sent reikninginn og fengið hann greiddan í góðri trú um að það færi ekki gegn hlut hafalögum. Dæmdur til að greiða Héraðsdómur Reykjaness taldi að eiganda ráðgjafafyrirtækisins hljóti að hafa verið ljóst að Gunnars majoness hf. hefði átt í verulegum fjárhagserfiðleikum að stríða þegar reikningurinn var gefinn út og svo greiddur eftir frestdag, þar sem ráðgjafavinnan hljóti í eðli sínu að hafa komið inn á fjárhagsstöðu Gunnars majoness. Var ráðgjafafyrirtækið því dæmt til að endurgreiða reikninginn.
Tengdar fréttir Þrotabú Gunnars majones krefst þess að Kleópatra verði dæmd til að greiða 173 milljónir króna Gunnars Majones var selt fyrir 62,5 milljónir króna árið 2014. 21. janúar 2016 16:18 Mest lesið Trump hækkar tolla á öll lönd Viðskipti erlent Samrunaviðræðum Íslandsbanka og Skaga slitið Viðskipti innlent Gefur fermingamyndinni 10 í einkunn Atvinnulíf Byrja á þremur verslunum og skoða sameinaða verslun á Selfossi Viðskipti innlent Sætur borgarbíll þar til kíkt er í skottið Samstarf Einn stofnenda ASOS fannst látinn Viðskipti erlent Skapa nýjar flíkur úr óseldum notuðum fötum Atvinnulíf Prófessor slær á áhyggjuraddir Viðskipti innlent „Við reiknum með því að bandarísk stjórnvöld séu með plan B“ Viðskipti innlent Íþróttaálfurinn reynir við Íslandsmet á fjölskylduhátíð BL Samstarf Fleiri fréttir Samrunaviðræðum Íslandsbanka og Skaga slitið „Við reiknum með því að bandarísk stjórnvöld séu með plan B“ Engin viðvarandi markaðssetning frá 2023 Bestu íslensku vörumerkin 2025 heiðruð í Hörpu Allt á uppleið á Grundartanga Nova kaupir Ofar Byrja á þremur verslunum og skoða sameinaða verslun á Selfossi Ólafsson gin aftur í eigu Íslendinga Hagnaður af grunnrekstri nam 36 milljörðum Sölvi genginn til liðs við KAPP Líklegra en áður að nýjar íbúðir seljist undir ásettu verði Lindex-höllin verður Kappahl-höllin og ný verslun opnuð 21. mars Arkitektar og verkfræðingar vænta samdráttar á íbúðamarkaði Prófessor slær á áhyggjuraddir 74 prósent íbúða seldist á undirverði í desember Dramadrottningar myndu líkja Tromsö-flugi við rýting í bakið Opinberir starfsmenn eigi rétt á sjöfalt fleiri veikindadögum Skiptastjóri Play kannar hvort Icelandair sé bótaskylt vegna ummæla starfsmanns Hæstiréttur gefur ÁTVR á baukinn Kristín í Komið gott fær sér dagvinnu Skiptastjóri Play þarf að víkja Innkalla brúna rúllutertu Taka Amaroq af markaði í Kanada Ríkið niðurgreiddi losun Icelandair um rúmar 400 milljónir Deilt um kjör Wolt-sendla Síminn tekur upp nýtt nafn og hagnast um 1,6 milljarða Ólafur Björnsson ráðinn fjármálastjóri Inchcape á Íslandi Loka Duck & Rose á sunnudaginn „Vel skipulögð herferð“ gegn ETS-losunarkerfinu Þóra og Eva sameinaðar á ný í Efstaleitinu Sjá meira
Þrotabú Gunnars majones krefst þess að Kleópatra verði dæmd til að greiða 173 milljónir króna Gunnars Majones var selt fyrir 62,5 milljónir króna árið 2014. 21. janúar 2016 16:18