Kerecis hlýtur 100 milljóna fjárframlag Sæunn Gísladóttir skrifar 19. október 2016 10:15 Guðmundur Fertram Sigurjónsson, framkvæmdastjóri Kerecis, ásamt Baldri Tuma og Hilmari. Mynd/Birgir Ísleifur Gunnarsson
Kerecis og bandaríska varnarmálaráðuneytið hafa gengið frá samningi um gerð sérútgáfu af sáraroði til að meðhöndla brunasár á særðum hermönnum. Í kjölfar aukinnar tíðni á brunasárum í hernaði setti Bandaríkjaþing nýverið lög um 46 milljóna dollara, 5,3 milljarða króna, sérframlag til læknisfræðilegrar þróunar á meðferðarúrræðum fyrir brunasár og hefur Kerecis hlotið fjárframlag úr fjárveitingunni sem nemur í upphafi um 100 milljónum króna. Kerecis er íslenskt þróunar-, framleiðslu- og markaðsfyrirtæki sem starfar á lækningavörumarkaði. Fram kemur í tilkynningu að ákjósanlegasta meðhöndlun á brunasárum sem ná inn í hold eða bein er meðhöndlun í upphafi með líkhúð og á seinni stigum með samgræðlingum (húð flutt af einum stað á annan á líkama þess slasaða). Hvorug þessara aðferða hentar til notkunar á herspítölum á átakasvæðum og felur verkefnið í sér að sérstök útgáfa af sáraroðinu verður þróuð og prófuð fyrir þessa notkun. Húð af spendýrum hentar illa þar sem meðhöndla þarf slíka húð sérstaklega vegna smithættu en slík smithætta er ekki til staðar milli fiska og manna „Í hernaðarátökum undanfarinna ára hefur brunaáverkum fjölgað mjög hjá bandarískum hermönnum og það er sérstakt áhersluefni bandarískra stjórnvalda að þróa bætt meðferðarúrræði. Það er frábært að bandaríski herinn skuli velja okkur til samstarfs í þessu verkefni sem gagnast mun bæði hermönnum sem slasast á átakasvæðum en ekki síður almenningi sem slasast við sín daglegu störf,“ segir Hilmar Kjartansson, bráðalæknir hjá Kerecis. „Við höfum undanfarin ár einbeitt okkur að meðhöndlun á sykursýkissárum og öðrum þrálátum sárum. Með þessu verkefni og öðrum verkefnum sem við höfum unnið með bandarískum yfirvöldum undanfarin ár færum við okkur yfir í bráðaáverka eins og brunasár eru,“ segir Baldur Tumi Baldursson, húðsjúkdómalæknir hjá Kerecis. Þessi þriðji samningur Kerecis við bandarísk varnarmálayfirvöld er við rannsókna- og lækningavöruinnkaupadeild bandaríska landhersins. Fyrir vinnur Kerecis að verkefnum með sárarannsóknasetri bandaríska landhersins og rannsóknamiðstöð bandaríska sjóhersins og er framgangur þeirra verkefna samkvæmt áætlun. Kerecis á því í samstarfi við þrjár stofnanir bandarískra varnarmálayfirvalda og stefnir að því að auka það samstarf enn frekar á næstu misserum. Opnun skrifstofu Kerecis í Washington DC nýverið er hluti af þeim áætlunum. saeunn@frettabladid.is
Tengdar fréttir Fyrirtækin hafa vaxið um 15-20 prósent Sjávarklasinn er fimm ára í ár. Starfsemin hefur vakið mikla athygli, einkum í Bandaríkjunum. Stofnandinn vill að Sílíkondalur sjávarútvegarins verði á Íslandi. Hann sætti rannsókn sérstaks saksóknara þegar Klasinn var stofnaður og se 23. mars 2016 12:00 Tækniþróunarsjóður úthlutar sex hundruð milljónum í desember Stjórn Tækniþróunarsjóðs hefur valið þá aðila sem eiga kost á úthlutun úr sjóðnum núna í desember. Úthlutað er úr honum tvisvar sinnum á ári og í þetta skiptið er búist við því að 600 milljónir verði veittar í styrki. Verkefnisstjórum sem hafa sótt um úthlutun er boðið að ganga til viðræðna um úthlutun áður en fjármagnið er veitt. 17. desember 2015 07:00 Fjárfestingarumhverfi sprota með þvi besta sem hefur verið á Íslandi Þrír nýir sjóðir voru stofnaði í byrjun árs með ellefu milljarða króna fjárfestingagetu og hafa þeir nú þegar fjárfest í tug fyrirtækja. 18. nóvember 2015 10:57 Mest lesið ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Gjaldskrá Strætó hækkuð á ný Neytendur Fleiri fréttir Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Sjá meira
Fyrirtækin hafa vaxið um 15-20 prósent Sjávarklasinn er fimm ára í ár. Starfsemin hefur vakið mikla athygli, einkum í Bandaríkjunum. Stofnandinn vill að Sílíkondalur sjávarútvegarins verði á Íslandi. Hann sætti rannsókn sérstaks saksóknara þegar Klasinn var stofnaður og se 23. mars 2016 12:00
Tækniþróunarsjóður úthlutar sex hundruð milljónum í desember Stjórn Tækniþróunarsjóðs hefur valið þá aðila sem eiga kost á úthlutun úr sjóðnum núna í desember. Úthlutað er úr honum tvisvar sinnum á ári og í þetta skiptið er búist við því að 600 milljónir verði veittar í styrki. Verkefnisstjórum sem hafa sótt um úthlutun er boðið að ganga til viðræðna um úthlutun áður en fjármagnið er veitt. 17. desember 2015 07:00
Fjárfestingarumhverfi sprota með þvi besta sem hefur verið á Íslandi Þrír nýir sjóðir voru stofnaði í byrjun árs með ellefu milljarða króna fjárfestingagetu og hafa þeir nú þegar fjárfest í tug fyrirtækja. 18. nóvember 2015 10:57