Risotto með ferskum aspas og stökku beikoni
1 msk ólífuolía + klípa smjör
1 laukur
1 sellerí stilkur
2 hvítlauksrif
4 dl arborio hrísgrjón
250 g smátt skorinn aspas
8 sveppir, smátt skornir
8 dl kjúklingasoð
2 dl hvítvín
Salt og pipar
60-80 g parmesan ostur
2 msk smjör
Ofan á:
100 g beikon
100 g aspas
100 g sveppir
Aðferð:
Hitið ólífuolíu í potti og steikið laukinn, sellerí og hvítlauk í 2-3 mínútur. Bætið smátt söxuðum aspas og smátt söxuðum sveppum út í pottinn og steikið, bætið því næst arborio grjónum út í og hrærið stöðugt.
Hellið hvítvíninu saman við og leyfið því að sjóða niður, bætið næst kjúklingasoðinu smám saman viðog hrærið mjög vel á milli.
Bætið parmesan ostinum og smjörinu saman við í lokin og kryddið til með salti og pipar. Steikið beikon, aspas og sveppi á pönnu þar til hráefnin eru vel stökk. Setjið Risotto á disk og skreytið með stökku beikoni, aspas og sveppum. Rífið gjarnan niður meiri parmesan og stráið yfir réttinn í lokin.
Missið ekki af Matargleðinni öll fimmtudagskvöld klukkan 19:25 á Stöð 2.
Njótið vel.
Risotto að hætti Evu Laufeyjar
