Nýju hjúkrunarheimili fagnað í Árborg Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 14. janúar 2016 13:00 Ásta Stefánsdóttir, bæjarstjóri Sveitarfélagsins Árborgar sem fagnar fréttum af nýju hjúkrunarheimili sem verður byggt á Selfossi á næstu þremur til fimm árum. Vísir/Pjetur/Árborg „
Það eru afar góðar fréttir fyrir þetta svæði að bygging hjúkrunarheimilis sé komin á dagskrá,“ segir Ásta Stefánsdóttir, bæjarstjóri í Árborg um byggingu nýs hjúkrunarheimilis í sveitarfélaginu. Heimilið í Árborg verður með fimmtíu rýmum. Samstarfsnefnd um opinberar framkvæmdir hefur fallist á framkvæmdaáætlun heilbrigðisráðherra sem felur í sér byggingu þriggja nýrra hjúkrunarheimila á næstu fimm árum. Alls verða hjúkrunarrýmin 214 talsins – í Reykjavík, Kópavogi og Árborg – og er nemur áætlaður heildarkostnaður framkvæmdanna 5,5 milljörðum króna. „Það hefur um langa hríð verið mikil þörf fyrir fjölgun hjúkrunarrýma og biðlistar í Árnessýslu verið langir. Algengt hefur verið að fólk hefur þurft að fara mjög langt frá heimilum sínum á hjúkrunarheimili og það er mikið ánægjuefni að þjónustan færist nær íbúum,“ segir Ásta.Náðu eyrum ráðamannaÁsta segir að á síðustu misserum hafi mikil vinna farið fram bæði hjá Sveitarfélaginu Árborg og innan Héraðsnefndar Árnesinga og Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga sem hefur miðað að því að vekja athygli á því hve staðan hefur verið slæm og að þrýsta á um að ákvörðun verði tekin um að hefja framkvæmdir. „Það er ljóst að við höfum náð eyrum ráðamanna og næstu skref verða væntanlega þau að hefja viðræður við heilbrigðisráðuneytið um framhald málsins,“ segir Ásta. Lögum samkvæmt skulu sveitarfélög greiða hluta kostnaðar við byggingu hjúkrunarheimila, eða ekki minna en 15% stofnkostnaðar, en rekstur slíkra heimila fellur ekki undir lögboðið hlutver sveitarfélaga.En er búið að ákveða hvar nýja heimilið verður staðsett?„Nei, ekki er búið að taka formlega ákvörðun um staðsetningu hjúkrunarheimilis, en horft hefur verið til svæðis sem sveitarfélagið á norðan við Hagalæk og Móaveg á Selfossi, endanleg staðsetning verður ákveðin í deiliskipulagi“, segir bæjarstjórinn.
Tengdar fréttir Samþykkja framkvæmdaáætlun um byggingu 214 nýrra hjúkrunarrýma Hjúkrunarrýmin verða í Reykjavík, Kópavogi og Árborg og nemur áætlaður heildarkostnaður framkvæmdanna 5,5 milljörðum króna. 14. janúar 2016 10:21 Mest lesið Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Innlent Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ Innlent Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Innlent Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife Innlent Fleiri fréttir Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Sjá meira
Samþykkja framkvæmdaáætlun um byggingu 214 nýrra hjúkrunarrýma Hjúkrunarrýmin verða í Reykjavík, Kópavogi og Árborg og nemur áætlaður heildarkostnaður framkvæmdanna 5,5 milljörðum króna. 14. janúar 2016 10:21