Jól

Jólakjóllinn er kominn í hús

Guðný Hrönn skrifar
Hildur Sif Hauksdóttir heldur úti heilsusíðunni healthbyhildur á Instagram.
Hildur Sif Hauksdóttir heldur úti heilsusíðunni healthbyhildur á Instagram. Vísir/GVA
Heilsugúrúinn og fagurkerinn Hildur Sif Hauksdóttir er komin með jóladressið. Eftir dágóða leit fann hún hinn fullkomna jólakjól sem mun vera afar þægilegur og smart.

Hildur Sif kveðst vera með mínímalískan stíl og leggja mikla áherslu á þægindi þegar hún kaupir sér föt. „Þægindi eru lykilatriði á aðfangadag ef maður á að endast í dressinu fram á kvöld,“ segir Hildur, sem mun klæðast kjól frá Samsøe & Samsøe um jólin. „Ég fann þennan rosa flotta kjól í Karakter í Smáralindinni. Hann er klassískur í sniðinu og mjög þægilegur.“

Hildur kaupir sér ávallt nýtt dress fyrir jólin. „Já, það hefur verið ákveðin hefð að kaupa sér eitthvað fínt fyrir jólin til að gera kvöldið extra sérstakt. Eftirminnilegasta dress sem ég hef klæðst á aðfangadag er sérsaumaður gullkjóll sem amma mín saumaði á mig og systur mína þegar við vorum litlar, mér þykir rosa vænt um þann kjól.“

Bakpoki frá Stellu McCartney er á óskalistanum.
Aðspurð út í bestu tískujólagjöf sem hún hefur fengið kemur gervipels úr Topshop fyrst upp í huga Hildar. „Ég fékk hann frá kærastanum mínum fyrir nokkrum árum. Ein af mest notuðu flíkum sem ég á og ég nota hann allan ársins hring. Einnig eru sólgleraugu frá Valentino í miklu uppáhaldi, þau gaf ég sjálfri mér fyrir einu ári síðan.“

Hvað er svo á óskalistanum hjá fagurkeranum Hildi? „Svartur Fallabella-bakpoki frá Stellu McCartney, skórnir Nike Air Max 95 premium, Organic Tonic maski frá Mario Badescu og svo er ég líka mjög ástfangin af úlpunni Hofsjökli í sérstakri útgáfu frá 66°Norður. Þetta er eitthvað af því sem er á óskalistanum mínum þessa stundina.“






×