Fólk komið yfir nírætt fast á bráðadeild Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 24. janúar 2016 18:51
Fjögur hundruð sjúklingar sem komnir eru yfir nírætt voru á síðast ári fastir á bráðadeild Landspítalans í meira en sólarhring þar sem nærri allar deildir spítalans voru fullar. Yfirlæknir segir ástandið óásættanlegt. Dæmi eru um fólk dvelji á bráðadeildinni í allt að fimm sólarhringa. Bráðamóttaka Landspítalans í Fossvogi er sú stærsta á landinu. Þangað leita að meðaltali tvö hundruð sjúklingar á dag. Aðsókn á deilina hefur aukist mikið síðustu mánuði. „Síðastliðna tvo þrjá mánuði þá erum við mjög oft með 10 til 20% umfram aðsókn. Það hafa auðvitað komið dagar eins og brotadagurinn mikli þarna einn mánudaginn þar sem aðsóknin var næstum því 100% yfir venjulegan dag,“segir Hilmar Kjartansson yfirlæknir á bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi. Ekki aðeins hefur aðsóknin aukist heldur hefur verður það sífellt stærra vandamál hversu langan tíma tekur að koma sjúklingum af bráðadeildinni, á aðrar deildir spítalans, þar sem þær eru yfirfullar. „Einstaklingar yfir nírætt. Fyrir þremur árum síðan þá voru áttatíu einstaklingar yfir allt árið sem voru í sólarhring eða lengur. Árið í fyrra þá voru þeir yfir fjögur hundruð. Þannig að það náttúrulega sýnir sig hvað þessi bið hefur aukist mikið,“segir Hilmar. Þegar hvað mest er að gera á deildinni þá þurfa sjúklingar að liggja frammi á göngum. Hilmar segir það oft svo að helmingur sjúklinganna á deildinni sé að bíða eftir því að komast á aðrar deildir. Þeir sem bíði lengst þurfi að bíða í fimm sólarhringa. Hann segir ástandið á bráðadeildinni haldast í hendur við ástandið á spítalanum öllum. Flestar deildir spítalans eru yfirfullar. Stór ástæða fyrir því er sú að í dag eru um níutíu sjúklingar fastir á spítalanum sem þurfa að komast á hjúkrunarheimili en fá ekki pláss þar þar sem þau eru öll full. „Okkur finnst þetta óásættanlegt,“ segir Hilmar.
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira