Viðskipti innlent

Atli nýr framkvæmdastjóri DHL Express í Danmörku

Sæunn Gísladóttir skrifar
Atli Freyr Einarsson tekur við starfi framkvæmdastjóra DHL Express í Danmörku. Hann hóf störf hjá DHL á Íslandi sem bílstjóri árið 1997.
Atli Freyr Einarsson tekur við starfi framkvæmdastjóra DHL Express í Danmörku. Hann hóf störf hjá DHL á Íslandi sem bílstjóri árið 1997.
Atli Freyr Einarsson tekur við starfi framkvæmdastjóra DHL Express í Danmörku. Hann hóf störf hjá DHL á Íslandi sem bílstjóri árið 1997 segir í tilkynningu.

Atli Freyr Einarsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri DHL Express í Danmörku. DHL Express í Danmörku er 500 manna fyrirtæki sem veltir árlega 9 milljörðum króna. Fyrirtækið er eitt það allra stærsta á hraðflutningsmarkaði í Skandinavíu. Atli Freyr tekur til starfa hjá danska fyrirtækinu 1. janúar 2017.

Atli hefur unnið allan sinn starfsferil innan DHL og sem framkvæmdastjóri DHL á Íslandi síðastliðin sex ár. Saga Atla Freys innan DHL á Íslandi er um margt áhugaverð. Hann hóf störf hjá fyrirtækinu sem bílstjóri árið 1997. Meðfram háskólanámi vann hann í útkeyrslu og í þjónustudeild í hlutastarfi. Eftir útskrift úr háskóla færði hann sig yfir í söludeild fyrirtækisins og var gerður að sölu- og markaðsstjóra árið 2005. Frá og með árinu 2010 hefur Atli gengt stöðu framkvæmdastjóra DHL Express Íslandi. Staða DHL á Íslandi hefur verið sterk og markaðshlutdeild þeirra framúrskarandi. Sérstaklega hefur tekist vel til við að snúa erfiðri stöðu eftir hrun fyrirtækinu í vil.

„Þetta er auðvitað mikil áskorun en umfram allt skemmtilegt tækifæri sem ekki er hægt að láta fram hjá sér fara,“ segir Atli Freyr. DHL á Íslandi hafi gengið vel og náð markmiðum sínum á hörðum samkeppnismarkaði. Þekkingin á flutningamarkaðnum væri mjög góð og samkeppnishæf við það besta sem gerist erlendis.

Flutningsnet DHL nær til yfir 220 landa

DHL er leiðandi fyrirtæki á heimsvísu í flutningaþjónustu og er gjarnan nefnt „Flutningsfyrirtæki heimsins“. Sérfræðiþekking fyrirtækisins liggur einkum í alþjóðahraðflutningum og miðlun flug- og sjófraktar, landflutningum og vörustjórnun. Flutningsnet DHL, sem nær til yfir 220 landa og svæða og 310 þúsund starfsmanna um allan heim, veitir viðskiptavinum yfirburðagæði í þjónustu og þekkingu á heimamörkuðum og tekur tillit til margbreytilegra þarfa hvers svæðis. DHL tekur samfélagslega ábyrgð alvarlega og styrkir umhverfisvernd, neyðaraðstoð og menntun víðsvegar um heiminn.

Ekki hefur verið ráðið í framkvæmdastjórastöðuna á Íslandi að svo stöddu en gengið verður frá ráðningu í upphafi nýs árs.

Atli Freyr er kvæntur Önnu Svandísi Gísladóttur hjúkrunarfræðingi og eiga þau þrjú börn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×