Viðskipti innlent

Sigurjón kveður Hringbraut

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Sigurjón Magnús Egilsson.
Sigurjón Magnús Egilsson.
Sigurjón Magnús Egilsson lætur af störfum hjá fjölmiðlafyrirtækinu Hringbraut eftir rúman mánuð. Frá þessu greinir hann sjálfur á Facebook. Sigurjón var ráðinn til Hringbrautar í apríl síðastliðnum og þá sem ritstjóri allra miðla en Hringbraut rekur útvarpsstöð og sjónvarpsstöð auk þess að halda úti vefsíðu.

„Ekki er ég viss um hvað ég tek mér fyrir hendur að þeim tíma loknum. Ýmislegt kemur til greina,“ segir Sigurjón á Facebook og birtir mynd af sér við það tilefni.

„Ég sagði upp störfum 8. ágúst s.l. og sex mánaða uppsagnarfrestur er senn að baki. Fyrir nokkrum mánuðum hætti ég sem ritstjóri allra miðla Hringbrautar, einsog ég var ráðinn til, og hef síðan verið ritstjóri Þjóðbrautar.“

Sigurjón stýrði þættinum Sprengisandi á Bylgjunni í lengri tíma og var ráðinn fréttastjóri 365 miðla haustið 2014. Áður hélt hann úti vefnum Midjan.is en hann á að baki áratugi í fjölmiðlum og hefur komið víða við.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×