Jól

Smákökurnar slógu í gegn

Lilja Björk Hauksdóttir skrifar
Gestirnir úr Vinaminni ásamt gestgjöfum sínum.
Gestirnir úr Vinaminni ásamt gestgjöfum sínum.

Nemendur Sunnulækjarskóla á Selfossi bökuðu smákökur og gáfu fólki úr Vinaminni sem er dagdvöl fyrir fólk með heila­bilunar­sjúkdóma í tilefni árlegrar góðgerðarviku í skólanum. „Ákveðið var að baka góðar og gamaldags smákökur eins og haframjölskökur, vanilluhringi og hálfmána,“ segir María Maronsdóttir heimilisfræðikennari sem aðstoðaði krakkana við baksturinn. Hún bætir við að eftir að kökurnar voru tilbúnar hafi þeim verið pakkað inn og hver poki var skreyttur með perluðu jólatrésskrauti sem nemendurnir perluðu sjálfir.

María sýnir nemendum sínum réttu handtökin við baksturinn.

Nokkrir strákar úr áttunda bekk tóku svo á móti fólkinu úr Vinaminni og buðu því upp á kaffi, kakó og smákökur. „Ég veit ekki hverjir voru spenntari yfir þessum hittingi, strákarnir eða fólkið frá Vinaminni. Allavega skein gleðin úr hverju andliti og kynslóðirnar sátu og spjölluðu saman. Við kvöddum svo gestina með fullum kassa af smákökum og meðfylgjandi eru uppskriftir að þeim,“ segir María og brosir.

Haframjölskökur með Rice Krispies

1 dl olía

2 dl sykur

1 dl púðursykur

2 egg

½ tsk. matarsódi

¼ tsk. lyftiduft

½ tsk. vanilludropar

3 dl haframjöl

2½ dl hveiti

2 dl Rice Krispies eða kornflex

1 dl súkkulaðispænir

Hitið ofninn í 175 °C. Hrærið olíu og sykur þar til létt og ljóst. Bætið vanilludropum í og eggjunum einu í senn og hrærið vel í á milli. Blandið hveiti, matarsóda og lyftidufti í, þá haframjöli og Rice Krispies eða kornflexi. Setjið með teskeið á plötu klædda bökunarpappír. Hafið kúlurnar frekar litlar. Bakið í átta til tíu mínútur, ofarlega í ofninum. Geymið í vel lokuðu íláti í kæli eða í frosti.

Vanilluhringir



350 g smjör



250 g sykur



1 egg



500 g hveiti



½ tsk. hjartasalt



2 tsk. vanilludropar



Allt hnoðað vel saman (ég nota hnoðarann í hrærivélinni) og deigið kælt.

Ágætt er að geyma deigið yfir nótt í ísskáp. Deigið er svo sett í hakkavél og notað stjörnuform til að fá rétt lag á kökurnar. Deigið kemur út í lengjum og er skorið í bita og búnir til hringir sem síðan eru bakaðir við 180 gráður (á blæstri) í um sjö mínútur. Það er einnig hægt að sprauta deiginu með köku­sprautu ef gamla góða hakkavélin með mynstrinu er ekki til staðar.

Hálfmánar ömmu Dúnu

500 g hveiti

250 g sykur

370 g smjörlíki

2 egg

1 tsk. lyftiduft

1 tsk. sítrónudropar

Þurrefnunum blandað saman. Vætið í með eggi, mjólk og dropum. Smjörlíkið mulið saman við og hnoðað vel. Deigið rúllað þunnt út á hveitistráðu borði. Kringlóttar kökur skornar út með glasi eða móti. Rabarbarasulta sett á hverja köku, hún brotin saman og þrýst á brúnirnar með gaffli. Gæta þarf þess að setja ekki of mikið af sultu á kökurnar því þá geta þær sprungið. Bakað við 180°C í tíu til tólf mínútur.






×