Jól

Jóla­daga­tal Hurða­skellis og Skjóðu - 7. desember

Systkinin Hurðaskellir og Skjóða ætla að föndra eitthvað skemmtilegt á hverjum einasta degi fram að jólum. 

Skjóða er að vísu með tíu tröllaputta og Hurðaskellir er algjör jólasveinn en þau hafa ótrúlega gaman að því að föndra og láta því ekki ónákvæmni eða brussugang á sig fá. Um leið og þau föndra kenna þau öðrum að gera jólaskraut, piparkökuhús, jólakort og fleira sniðugt.

Það er gaman að skreyta umhverfið sitt fyrir jólahátíðina og í dag ætla þau Hurðaskellir og Skjóða að búa til hurðakrans. Kransinn er síðan hægt að hengja á útidyrnar hjá sér og gleðja þannig alla þá sem eiga leið framhjá heimilinu. Afskaplega einfalt og þægilegt föndur sem gaman er að dunda sér við.

Frekari leiðbeiningar má finna á heimasíðunni jolasveinar.is og Facebook-síðu jólasveinanna.


Tengdar fréttir






×