Fram kemur í tilkynningu að Jamie´s Italian staðirnir hafi notið mikilla vinsælda um allan heim og eru í miklum vexti. Nú þegar eru 42 veitingastaðir í Bretlandi og um 25 á öðrum mörkuðum eins og Ástralíu, Dubai, Brasilíu. Hver og einn staður hefur sitt eigið auðkenni og eigin hönnunarstíl og mun Jamie´s Italian á Íslandi heiðra Hótel Borg, eitt elsta og virtasta hús borgarinnar í sinni nálgun.
Jón Haukur Baldvinsson, einn af forsvarsmönnum Jamie´s Italian á Íslandi segir meðal annars: „Ímynd Íslands sem matvælaland með allri sinni fegurð og hreinleika í bland við mikla grósku á veitingamarkaðnum á vel við ímynd Jamie Oliver sem er mikill talsmaður sjálfbærnar matvælaframleiðslu sem og upprunarvottunar afurða sem hann gerir gríðarlegar miklar kröfur til og er engu hliðrar til í þeim efnum."
„Ég er virkilega spenntur að koma með Jamie´s Italian til Íslands," segir Jamie Oliver í tilkynningu. „Reykjavík er svo falleg borg með ríka arfleið, frábæra matarmenning þar sem alvöru ástríða fyrir sér-íslenskum hráefnum, sem hentar okkur fullkomnlega. Við höfum fengið það einstaka tækifæri að opna á hinu virðulega Hótel Borg sem skipar svo stóran sess í menningu Reykjavíkur og það er okkur mikill heiður. Þegar við opnum dyrnar, þá munum við bera fram einfalda og hagkvæman Ítalskan mat fyrir alla fjölskylduna sem er gerð úr bestu mögulegum hráefnum sem við komumst í. Ég get ekki beðið að opna á Íslandi.“
Einfaldur matur fyrir alla fjölskylduna
Jamie´s Italian byrjaði sem samstarfs á milli Jamie Oliver og lærimeistara hans, Gennero Contaldo. Sú hugmynd var sköpuð í kringum „Italian table“ – sem er einfaldur matur sem öll fjölskyldan getur notið saman. Jamie´s Italian Reykjavik mun bera fram klassíska og einfalda ítalska rétti með hinu fræga handbragð Jamie´s þar sem áherslan er lögð á fersk árstíðabundin hráefni.
Eins og Vísir greindi frá var Jamie Oliver í nokkra daga á Íslandi í byrjun árs. Samkvæmt heimildum Vísis var hann að skoða mögulega staði fyrir veitingastaðinn á þeim tíma. Hann birti nokkrar myndir frá ferðinni á samfélagsmiðlum. Hann birti meðal annars mynd af Hallgrímskirkju á Instagram.
Við myndina ritaði hann á ensku “Very Cool church design in Iceland - be cool with a bakery at the bottom” sem á íslensku gæti útlagst: „Mjög kúl hönnun á kirkju á Íslandi – væri kúl að hafa bakarí á neðstu hæðinni.“