Fótbolti

Villas-Boas tekur við af Eriksson

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Andre Villas-Boas kynntur til leiks hjá Shanghai.
Andre Villas-Boas kynntur til leiks hjá Shanghai. vísir/afp
Kínverska félagið Shanghai SIPG er búið að losa sig við Svíann Sven-Göran Eriksson og í hans stað hefur verið ráðinn Andre Villas-Boas.

Shanghai endaði í þriðja sæti og tólf stigum á eftir meisturum Guangzhou Evegrande í kínverska boltanum og það þótti ekki boðlegt á þeim bænum. Svíinn fékk því sparkið enn eina ferðina á löngum ferli.

Villas-Boas hefur verið atvinnulaus síðan hann missti vinnuna hjá Zenit fyrr á árinu.

Þó svo Villas-Boas sé aðeins 39 ára gamall vantar ekki reynsluna hjá honum. Hann er búinn að þjálfa Academica, Porto, Chelsea, Tottenham og Zenit á ferlinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×