Viðskipti innlent

Jón Ásgeir í héraðsdómi: „Frekja og eftirfylgni er ekki glæpur“​

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Jón Ásgeir Jóhannesson í dómssal áður en aðalmeðferð hófst í gærmorgun. Hún mun standa út næstu viku.
Jón Ásgeir Jóhannesson í dómssal áður en aðalmeðferð hófst í gærmorgun. Hún mun standa út næstu viku. Vísir/GVA
Jón Ásgeir Jóhannesson sem ákærður er fyrir hlutdeild í umboðssvikum í Aurum-málinu gaf skýrslu fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun en aðalmeðferð málsins fer nú þar fram.

Jón Ásgeir byrjaði á því að ávarpa dóminn en hann var einn stærsti eigandi Glitnis árið 2008 en málið snýst um sex milljarða króna lánveitingu bankans til FS38 sem var félag í eigu Pálma Haraldssonar viðskiptafélaga Jóns Ásgeirs. Lánið var notaði til að kaupa 25,7 prósent hlut Fons í bresku skartgripakeðjunni Aurum Holdings Limited.

Í ávarpi sínu rakti Jón Ásgeir að hann hefði nú haft stöðu grunaðs manns síðan árið 2002.

260 klukkutímar í yfirheyrslum

„Ég hef mátt þola margar húsleitir á heimili mínu og fjölskyldu minnar og í þeim fyrirtækjum sem ég hef tengst. Mér telst til að ég hef verið í 260 klukkustundir í yfirheyrslum og ég hef varla tölu lengur á þeim ákærum sem ég hef sætt. Símar mínir og Ingibjargar konu minnar hafa verið hleraðir þó að hún hafi aldei verið grunuð um neitt. Málsmeðferðin gagnvart mér á sér enga hliðstæðu. [...] Upplifun mín er sú að mín mál hafi alltaf verið rannsökuð til sektar,“ sagði Jón Ásgeir.

Hann nafngreindi síðan tvo lögreglumenn sem komu að rannsókn Aurum-málsins, þá Grím Grímsson og Svein Ingiberg Magnússon. Sagði Jón Ásgeir að þeir hefðu ekki hikað við að leyna gögnum í málinu sem sýndu að sakirnar í því stæðust ekki. Hann vísaði svo í þau samtímaverðmöt sem aðrir sakborningar vísuðu einnig í í gær en um er að ræða þrjú verðmöt sem fyrirtækjaráðgjöf Glitnis, Kaupþing og Damas LLC gerðu á hlutafénu í Aurum. 

Sagði Jón Ásgeir verðmötin sýna að verðmæti Aurum væri vissulega í samræmi við lánveitingu Glitnis, en ákæruvaldið heldur því fram að félagið hefði verið lítils virði og lánveitingin því stefnt fé bankans í hættu. Komið hefur fram við aðalmeðferð málsins að verðmötin hafi ekki verið í upphaflegu gögnum málsins. Jón Ásgeir sagði skýringar Gríms á því að verðmat Damas hafi ekki verið í gögnum málsins „ömurlegar.“

Bugaður af framkomu yfirvaldsins

Samkvæmt ákæru sýna gögn málsins að Jón Ásgeir „hafði mikil, bein og óeðlileg afskipti af rekstri Glitnis og mikil ítök og áhrif. Þessum áhrifum beitti hann einkum gagnvart ákærðu Lárusi og Bjarna.“ Er síðan vísað í tölvupóstsamskipti Jóns Ásgeirs við Lárus Welding sem var forstjóri Glitnis og er ákærður í málinu fyrir umboðssvik. Í gær fór því nokkur tími í það hjá ákæruvaldinu að spyrja Lárus út í samskipti hans við Jón Ásgeir en við lok ávarps síns í dag sagði Jón Ásgeir.

„Ég get trúað ykkur fyrir því að ég er orðinn bugaður af framkomu yfirvaldsins í minn garð. [...] Lán og tryggingar Glitnis til Fons og kaupréttur bættu stöðu Glitnis, það leikur ekki vafi á því. Lánið fór í gegnum alla þá ferla sem slíkt lán þurfti innan bankans. Svo vil ég vekja athygli dómsins á því að frekja og eftirfylgni er ekki glæpur.“

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×