„Það sem ég fatta ekki er að þetta fólk mun allt fá lögfræðikröfu fyrir mína hönd fyrir að brjóta á mér höfundar- og sæmdarrétt ásamt því að stela myndinni.“
Óþolandi þegar myndir eru misnotaðar og rifnar úr samhengi
Um er að ræða mynd sem Ásgeir tók af Birgittu Jónsdóttur Pírata auk Spessa ljósmyndara frá einhverjum útifundinum sem haldinn var fyrir mörgum árum. Þessi mynd er á fleygiferð um netið, pólitískir andstæðingar Birgittu sem vilja koma á hana höggi dreifa henni sem best þeir geta og spyrja gjarnan: Viljum við þessa sem forsætisráðherra?

Bilaður fjöldi sem brýtur höfundarréttarlög
Ásgeir hefur hingað til verið nokkuð harður á því að standa vörð um höfundarrétt á ljósmyndum sínum. Mörgum ljósmyndaranum hefur fallist hendur vegna þessa, slíkt er umfangið. En ekki Geira. Hann segist ekki vita hversu margir hafa fengið reikninga vegna ólögmætrar notkunar á myndum sínum. Myndstef hefur sótt þetta fyrir auk þess sem Geiri er með Gísla Tryggvason lögmann í innheimtustörfum fyrir sig.
„Þetta er svo bilaður fjöldi. Oftast eru þetta fjölmiðlar eða fyrirtæki sem eru að nappa myndum og nota í óleyfi.

Lögfræðikostnaðurinn hleypur á hundruðum þúsunda
Fæstir gera sér grein fyrir því að með því að deila myndum á Facebook getur það verið að brjóta höfundarréttarlög.
„Það er nefnilega vandamálið. Fólk þekkir ekki lögin. Þau eru ekki að fara að breytast neitt, þetta eru alþjóðleg lög sem eru í gildi. Facebook sjálft er svo með sínar eigin reglur, en það er martröð að fá þá til að taka út eina mynd.“
Geiri segir að kostnaður fyrir viðkomandi, geti verið gríðarlegur, umtalsverða vinnu þarf að inna af hendi. „Vinna þarf gögn sem þýðir vinnutap og fyrir mig og aðra. Með lögfræðikostnaði er svona leikandi að hrökkva í hundruð þúsunda á hvern og einn og samt heldur fólk áfram. Það er eins og fólk skilji bara ekki að lögin bæði hér heima og erlendis gilda á internetinu og þjófnaður er alltaf þjófnaður, sama þó um ljósmynd sé að ræða. En hey, ef fólk vill tapa hundruðum þúsunda og búa til botnlausa vinnu fyrir lögmenn, þá er því velkomið að gera það því ég mun ekki bakka þó aðrir hafi ekki þor í að vera harðir á sínum rétti.“
...
Uppfært 12:50
Til að allrar nákvæmni sé gætt er ekki um að ræða kærur á þessu stigi máls; til þeirra kemur ef viðkomandi svara ekki kröfum Ásgeirs. Eru lesendur beðnir velvirðingar á ónákvæmninni.