Leikjavísir

Battlefield 1: Heillaskref aftur á bak

Samúel Karl Ólason skrifar
Það gengur mikið á í orrustum Battlefield 1.
Það gengur mikið á í orrustum Battlefield 1.
„Það er ekki búist við því að þú munir lifa af.

Þetta eru skilaboðin sem spilarar fá þegar þeir kveikja fyrst á Battlefield 1 og þau munu reynast rétt. Leikurinn byrjar á því að spilurum er kastað á víglínur fyrstu heimsstyrjaldarinnar þar sem herdeildin Harlem Hellfighters reyna að verjast stórsókn Þjóðverja.

Með því að fara aftur til fyrri heimsstyrjaldarinnar hrista Dice verulega upp í hinum hefðbundnu skotleikjum og niðurstaðan er hreint út sagt frábær.

Battlefield leikirnir eru fyrst og fremst fjölspilunarleikir. Einspilun BF1 er hins vegar mjög góð og sett skemmtilega upp. Það tekur þó ekki langan tíma að fara í gegnum hana en hún er uppbyggð sem þjálfun fyrir fjölspilunina.

Einspilunin snýr að nokkrum persónum á mismunandi vígstöðvum í styrjöldinni, allt frá Frakklandi til Arabíu og London. Eitt besta atriðið er þó þegar spilarar þurfa að fljúga dúfu yfir vígvöllinn.

Fjallað er um (ímyndaðar) persónur leiksins á virðingarfullan hátt svo skín í heift og grimmd styrjalda. Stríðið sem átti að binda enda á öll önnur stríð batt þó ekki enda á neitt.

Eins og þeir sem hafa spilað aðra Battlefield leiki vita, er einspilunin eiginlega bara aukaatriði. 64 spilarar að berjast um yfirráð á stórum vígvöllum með notkun skriðdreka, flugvéla, hesta og loftskipa. Það er aðalmálið.

Fjölspilunin í BF1 er einfaldlega frábær. Þrátt fyrir að serían stökkvi um hundrað ár aftur í tímann er ekki svo mikið sem hefur breyst. DICE hefur þó tekið sér örlítið skáldaleyfi varðandi vopnaburð hermanna.

Þá eru einnig aðrir spilunarmöguleikar. Einn gengur út á að fanga dúfu og skrifa skilaboð til að senda með dúfunni. Annar gengur út á að annað liðið stendur í allsherjar sókn og hinir verjast. Það er af nógu að taka.

Breytt flokkakerfi

Eins og í fyrri leikjum seríunnar eru fjórar mismundandi tegundir hermanna til að velja úr. Flokkunum hefur þó verið breytt.

Assault hermenn notast við hríðskotabyssur og haglabyssur og eru búnir sérstökum vopnum til að sigrast á skriðdrekum. Medic hermenn eru mikilvægir þar sem þeir lækna aðra, en þeir eru búnir hálfsjálfvirkum rifflum. Support hermenn notast við vélbyssur og sprengjuvörpur til að valda usla úr temmilegri fjarlægð. Að lokum eru leyniskyttur með langdrægum rifflum.

Þá geta allar tegundir notast við mismunandi tegundir af handsprengjum, skammbyssum og fleiri vopnum til að berja eða stinga óvini sína.

Auk þess birtast reglulega kassar sem spilarar geta notað til að breyta um flokk í eitt skipti. Þar er hægt að finna eldvörpur, brynjur og búnað til að gera út um skriðdreka. Talandi um skriðdreka, þá eru þeir mun öflugari en í öðrum BF leikjum. Þeir eru líka færri en það getur verið erfitt að ganga frá þeim án annarra skriðdreka.

Vopn leikisins eru gamaldags og skemmtileg en jafnframt erfið. Þú er nánast gagnlaust að skjóta frá mjöðminni með flestum þeirra og í flestum tilfellum er nauðsynlegt að vanda sig vel.

Það eru nokkur lítil atriði sem eru pirrandi og fer þar fremst það að ekki er hægt að hætta í fjölspilun á milli borða. Nauðsynlegt er að bíða í mínútu eða tvær til þess að hætta. Þar að auki koma upp sjónrænir gallar í leiknum en þeir eru nú eiginlega lítilvægir.

BF1 lítur fáránlega vel út grafíklega séð og er allt umhverfi leiksins, farartæki og hermenn mjög vel gert. Þá hefur eyðileggingin aldrei verið sýnilegri þar sem hægt er að sprengja upp nánast hvern einasta stein í hverju borði.

Veðurkerfi leiksins er mjög flott. Þoka og sandstormar geta gert sjónsvið spilara mun minna sem gerir leyniskyttum, skriðdrekum og flugvélum mjög erfitt fyrir. Veðrið getur breytt forsendum á mismunandi kortum.

Með því að færa Battefield seríuna aftur í tíma hefur henni verið fleytt fram á við á annan hátt og aðgreinir leikurinn sig vel frá öðrum skotleikjum eins og Call of Duty. Fyrri heimstyrjöldin er ekki eitthvað sem margir tölvuleikir hafa fjallað um og gerir það BF1 nokkuð einstakan. Þetta er án efa einn af bestu leikjum seríunnar, ef ekki sá besti.

(Ps. Ég er Sameold á Origin. Endilega addið mér ef þið eruð að spila.)


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×