Sport

Eins og þegar Barcelona og Real Madrid koma saman

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Íris Mist Magnúsdóttir
Íris Mist Magnúsdóttir Mynd/FSÍ
Íris Mist Magnúsdóttir fór fyrir besta fimleikaliði Evrópu um nokkurra ára skeið. Hún varð tvöfaldur Evrópumeistari í hópfimleikum með Gerplu, tilnefnd sem íþróttamaður ársins og svo mætti áfram telja.

Þrjú ár eru liðin frá því Íris hætti sjálf að keppa. Hún er samt enn viðloðandi hópfimleikana og ber núna hinn virðulega titil landsliðsþjálfari.

„Ég er að þjálfa kvennaliðið í dag. Ég byrjaði að þjálfa meistaraflokkinn í Gerplu fyrir rúmu ári og fékk svo þann heiður að vera boðin landsliðsþjálfarastaða hjá kvennaliðinu sem er algjört draumalið, þar er ekkert nema eintómir snillingar og fagmenn,“ sagði Íris þegar blaðamaður Fréttablaðsins hitti hana að máli á liðshótelinu í slóvensku borginni Maribor þar sem EM í hópfimleikum fer fram.

Fáir æfa jafn mikið

Íris var 26 ára þegar hún lagði fimleikabúninginn á hilluna. Aðspurð af hverju hún og fleiri fimleikakonur hætti svona snemma, miðað við margar aðrar íþróttir, segir hún að æfingaálagið taki sinn toll.

„Það æfa fáir jafn mikið og við og þú ert fljótari að verða saddur. Ég var sátt þegar ég hætti þótt ég héldi að ég gæti aldrei fengið nóg. Þú þarft að hafa svo rosalega mikla ástríðu fyrir þessu til að vera tilbúin að æfa 3-4 klukkutíma á dag.“

Hársbreidd frá þriðja gullinu í röð

Ísland, eða öllu heldur Gerpla, varð Evrópumeistari árin 2010 og 2012. Fyrir tveimur árum var EM haldið á Íslandi en þá þurftu stelpurnar að sætta sig við silfrið. En af hverju gekk gullið Íslandi úr greipum 2014?

„Út af því að ég var ekki í liðinu,“ sagði Íris og skellti upp úr. „Þetta var ótrúlega hörð barátta milli Svía og Íslendinga 2014. Svíarnir áttu bara betri dag en bæði lið voru frábær.“

Það má til sanns vegar færa. Ísland fékk 23,216 stig fyrir gólf­æfingarnar sem er met. Á endanum munaði aðeins 0,684 stigum á sænska liðinu og því íslenska.

Tveir turnar

Eins og áður sagði varð Gerpla Evrópumeistari 2010 og 2012 en í ár, líkt og 2014, sendir Ísland sameiginlegt lið til keppni. Uppistaðan í landsliðinu er úr tveimur félögum, Gerplu og Stjörnunni.

„Ég keppti bara fyrir Gerplu og hef aldrei sjálf verið hluti af landsliði. Þetta er auðvitað öðruvísi upplifun, hún er ekkert betri eða verri, hún er bara öðruvísi. Svo fer þetta eftir liðunum, hvernig þau ná að tengja,“ sagði Íris sem segir það íþróttinni til góðs að hafa tvö svona sterk félagslið hérna heima. Það hjálpi landsliðinu.

„Við æfum mikið saman, alveg í þrjá mánuði, þannig að þetta verður svolítið eins og félagslið. Landsliðið er eins og sambland af Barcelona og Real Madrid,“ bætti Íris við í léttum dúr en spænska fótboltalandsliðið er aðallega skipað leikmönnum frá þessum tveimur risafélögum.

Einbeitum okkur að okkur sjálfum

Erfitt er að hafa bein áhrif á frammistöðu andstæðingsins í hópfimleikum, öfugt við margar hópíþróttir.

„Við einbeitum okkur aðallega að okkur sjálfum. Við breytum ekkert miklu þótt við sjáum andstæðinginn,“ sagði Íris og bætti við því að lið geri aldrei róttækar breytingar á sínum æfingum, jafnvel þótt andstæðingurinn bryddi upp á einhverju óvæntu.

„Það er meira ef þau gera auðveldari æfingar, þá lækkum við kannski erfiðleikastigið og gerum auðveldara og öruggara í stað þess að spila út okkar helstu trompum,“ sagði Íris en einkunnin er sambland af erfiðleikastigi og framkvæmd æfinganna.

Fjórir verðlaunapeningar

Ísland sendir fjögur lið til keppni á EM; stúlknalið, kvennalið og blandað lið í unglinga- og fullorðinsflokki. Íris segir að markmiðið sé skýrt.

„Það er að koma með fjóra verðlaunapeninga heim,“ sagði Íris sem fylgist með af hliðarlínunni þegar kvennaliðið stígur á svið í undankeppninni í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×