Stærsta þota Bombardier mátar Reykjavíkurflugvöll Kristján Már Unnarsson skrifar 7. október 2016 15:00 Bombardier CS-300 á Reykjavíkurflugvelli í dag. Stöð 2/Baldur Hrafnkell Jónsson.
Stærsta farþegaþota Bombardier og nýjasta stolt kanadískrar flugvélaframleiðslu millilenti í Reykjavík eftir flugprófanir í Evrópu. Í fréttum Stöðvar 2 í kvöld verða sýndar myndir af flugvélinni og rætt við flugstjórann. Flugfélag Íslands er þegar komið með fimm Bombardier-skrúfuþotur sem taka allt að 76 farþega. Nýjasta tegundin frá verksmiðjunum í Montreal í Kanada er hins vegar tvöfalt stærri, heitir Bombardier CS 300 og tekur allt að 160 farþega. Flugprófanir hafa staðið yfir í eitt og hálft ár en Air Baltic verður fyrsta flugfélagið sem tekur hana í notkun í næsta mánuði.Flugstjórinn Mark Elliot í viðtali við Stöð 2.Stöð 2/Baldur Hrafnkell Jónsson.Kanadamenn lögðu henni beint fyrir utan höfuðstöðvar Icelandair á Reykjavíkurflugvelli og buðu fulltrúum íslenskra flugrekenda að skoða gripinn enda vonast þeir til að geta selt Íslendingum fleiri Bombardier-vélar. Þotan er sögð sparneytin og afar hljóðlát, hljóðspor hennar er sagt fjórfalt minna en hjá eldri vélum. Hún þarf einnig stuttar flugbrautir og flugstjórinn, Mark Elliot, segir brautirnar í Reykjavík nægilegar langar til að hún geti flogið þaðan fullhlaðin farþegum, bæði til Evrópu og Bandaríkjanna.Flugtak Bombardier-þotunnar verður sýnt á Stöð 2 í kvöld. Frá Reykjavík var áætlað að vélin flygi til Kansas í Bandaríkjunum án millilendingar.Stöð 2/Baldur Hrafnkell Jónsson.
Fréttir af flugi Mest lesið Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Viðskipti innlent Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Sviptingar í stjórn Amaroq Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Sjá meira