Viðskipti innlent

Það eru bara allir í góðu skapi á makrílvertíð á Fáskrúðsfirði

Kristján Már Unnarsson skrifar
Makrílvertíðin á Fáskrúðsfirði þetta sumarið stefnir í að slá öll met. Uppgrip eru hjá 160 starfsmönnum Loðnuvinnslunnar en undanfarnar sex vikur hefur verið unnið sleitulaust á vöktum allan sólarhringinn. Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2. 

Við fylgdumst með þar sem verið var að landa 650 tonnum úr nýja Hoffellinu en það lá utan á því gamla. Á bryggjunni hittum við skipstjórann, Berg Einarsson.

„Það er búið að vera alveg meiriháttar gangur á þessu síðastliðinn mánuð, stefnir bara í metvertíð hjá okkur hérna á Fáskrúðsfirði,” segir Bergur. 

Hoffellið hefur verið að koma með afla að landi á þriggja til fjögurra daga fresti og því hafa menn í vinnslunni þurft að hafa sig alla við til að hafa undan. Megnið af makrílnum fer í flökun og frystingu fyrir Evrópumarkað. 

Grétar Arnþórsson, verkstjóri hjá Loðnuvinnslunni, segir að frá 8. ágúst sé búið að vinna sleitulaust á vöktum allan sólarhringinn, dag og nótt.

„Í mánuð án þess að stoppa. Aldrei matur og aldrei kaffi,” segir Grétar og hlær.

-Er þá ekki fólkið að leka niður?

„Nei. Það hefur orðið að leggja aðeins af.”

-Er þá ekki stemmning hjá fólkinu?

„Nei. Þetta er allt of erfitt til þess,” svarar Grétar.

Grétar Arnþórsson, verkstjóri hjá Loðnuvinnslunni.Stöð 2/Friðrik Þór Halldórsson.
Í fyrra komu liðlega sjöþúsund tonn af makríl til vinnslu á Fáskrúðsfirði á stuttri síðsumars- og haustvertíð en nú stefnir aflinn í tíu þúsund tonn. 

„Það er bara aukinn kvóti og veiðar ganga mjög vel og vinnslan enn betur. Það gengur alveg meiriháttar vel í landi að vinna,” segir Bergur skipstjóri. 

Hann segir tíðarfar hafa verið með eindæmum gott og stutt að sækja makrílinn út af Austfjörðum en hann hefur verið að veiðast í kringum Hvalbak. 

„Bara stutt að fara og verið mjög góð veiði síðastliðinn mánuð.” 

Fyrir 160 starfsmenn Loðnuvinnslunar á Fáskrúðsfirði eru þetta uppgrip. 

„Jú, ég held að þetta séu alveg ágætis tekjur,” segir Grétar. Mikið hafi verið um skólakrakka í vinnu þar til skólinn byrjaði. Þetta hafi verið mjög gott hjá þeim og lítill skattur.

Frá athafnasvæði Loðnuvinnslunnar á Fáskrúðsfirði. Verið var að landa úr Hoffelli, sem sést við bryggjuna.Stöð 2/Friðrik Þór Halldórsson.
Eftir að skólakrakkarnir hættu hefur Íslendingunum fækkað í vinnslunni. 

„Þetta eru mest útlendingar, allar þjóðir. Þegar ég var að telja hér um daginn þá voru níu þjóðir hérna inni,” segir verkstjórinn. 

Og sjómennirnir á Hoffellinu kætast. 

„Seinasti mánuður var bara metmánuður hjá okkur. Svo það eru bara allir í góðu skapi,” segir skipstjórinn á Hoffelli SU-80. 

Fjallað var um franska bæinn Fáskrúðsfjörð og starfsemi Loðnuvinnslunnar í þættinum „Um land allt" á Stöð 2 fyrir tveimur árum.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×